Fyrir svefninn.

Farþegi á skipi bað mann að lána sér gleraugu.
Hann gerir það.
,, Geturðu svo gert svo vel og lánað mér bókina,
sem þú ert að lesa í,
því þú getur ekkert lesið gleraugnalaust."


Roskin stúlka, sem hélt mjög upp á ketti,
var spurð um orsökina að ást hennar á köttum.
,, Þegar ég sá, að ég gat engan mann náð í", sagði hún,
,, valdi ég mér það kvikindi, sem næst honum gengur
í ótryggð, svikum og fláræði".

Ólafur Briem kom einu sinni inn í búð á Akureyri.
Bar þá svo við að kaupmaður og undirmaður hans voru
að tala um bændafólk, og kölluðu þeir þá dóna.
Þá mælti Ólafur fram stöku þessa:

                   Það má kalla drottins dóna
                   daufan Íslands bændafans,
                   en ykkur satans æðstu þjóna,
                   óskabörn og vini hans.

                                       Góða nótt. Sleeping

                          


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Góða nótt Milla mín

Ragnheiður , 10.4.2008 kl. 21:35

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Góða nótt elsku Milla mín

Kristín Katla Árnadóttir, 10.4.2008 kl. 21:51

3 Smámynd: Brynja skordal

Gott að þú komst aftur í samband við umheiminn hafðu ljúfa nótt

Brynja skordal, 11.4.2008 kl. 00:01

4 Smámynd: Tiger

  Hahaha ... flottust þessi blessuð kattakona. Reyndar alveg rétt að einhverju leit, kettir eru hættulega miklir læðupokar og fláráðir með eindæmum þannig séð.. og snilldar vísa þarna í lokinlíka.. knús á þig inn í nóttina Milla mín og  þakka þér kærlega fyrir skemmtilega lesningu fyrir nóttina.

Tiger, 11.4.2008 kl. 02:49

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ætíð eru þær til að kæta mann þessar myndir frá Tiger míó,
eins og allt sem hann segir þessi litli strákur á myndinni.
Væri ekki úr vegi að senda hana til Kára Stefáns og fá að vita hver hann er þessi litli pjakkur, en maður verður víst að vera stilltur.
Eruð þið ekki sammála stelpur?
Takk fyrir innlitin kæru vinir.
                          Knús kveðjur í daginn
                                Milla. Circle Of Hearts 





Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.4.2008 kl. 06:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband