Fyrir svefninn.

                                Hafísinn.

Í júní mánuði árið 1888 kom svo mikill hafís í Vestmannaeyjar,
að öll höfnin og flóinn fylltust af ís.
Kaupskipin voru þá komin með vorvörurnar og lágu á höfninni,
en ekki varð komist um borð í þau, nema gangandi á ísnum.
Hrannaís lá þá austur með Söndum og íshella við Dyrhólaey.
Var ísinn svo mikill og þéttur, að ekki varð komist á sjó í
Vestmannaeyjum, og horfði til hinna mestu vandræða
vegna bjargarskorts.
Guðrún Pálsdóttir yngri var þá enn á lífi og átti heima í
tómthúsinu Kuðung. Var hún talin mesta ákvæðaskáld,
ef hún vildi það viðhafa.
Í vandræðum sínum kom mönnum nú saman um að leita
til Guðrúnar og fá hana til að yrkja á móti ísnum og
reyna að flæma hann burtu.
Til fararinnar urðu þrír af bestu mönnum, sem þá voru í Eyjum,
og höfðu þeir með sér fulla brennivínsflösku,
því að þeir vissu, að Guðrúnu þótti sopinn góður,
Lét Guðrún til leiðast og orti hún þrjár vísur, og lét þau
orð fylgja, að ísinn mundi verða horfinn eftir þrjá daga.
Vísur Guðrúnar eru á þessa leið:

                    Á engla safni er enginn stanz
                    oss við föllum styðja,
                    guðs í nafni græðarans
                    göngum öll að biðja.

                    Æ, vér stöndum öll í nauð,
                    í einu hljóði það er,
                    aftur sendu okkur brauð,
                    adda, góði faðir.

                    Hæst í standi herrans að
                    helgan fyrir soninn
                    blíð í anda beri það
                    bænin, trúin, vonin.

Brá svo við, að þegar tók að losna um ísinn og var hann
allur horfin eftir þrjá daga, svo að menn gátu aftur komist
á sjó og aflað björg í bú.
                                           ( Sögn Sigurður P. Oddssonar.)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sömuleiðis Sigga mín en ég er svo lánsöm að eiga fullt af gömlum bókum og ég elska að lesa þá visku sem í þeim býr.
                           Kærleikskveðjur
                              Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.4.2008 kl. 20:47

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mikið gaman að þessu Milla mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.4.2008 kl. 21:57

3 Smámynd: Heiða  Þórðar

Góða nótt mín kæra. Æðisleg lesning.

Heiða Þórðar, 14.4.2008 kl. 23:05

4 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Góða nótt vinkona mín kær

Róslín A. Valdemarsdóttir, 14.4.2008 kl. 23:08

5 identicon

Gaman að lesa þetta.

Já það er alltaf gaman að grugga í gamlar bækur

Ég er núna á fullu í dulrænum bókum .

kveðja .

Vallý (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 23:18

6 Smámynd: Brynja skordal

Góða nótt Milla mín

Brynja skordal, 15.4.2008 kl. 00:27

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góðan og blessaðan daginn, takk fyrir að lesa þessar sögur og vísur,
margar hverjar eru tær snilld.
                            Knús til ykkar.
                              Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 15.4.2008 kl. 07:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.