Er nú bara vita vitlaust, allt þetta rugl.

Já sko þetta rugl með hvetjandi auglýsingar til barna
um að þau vilji þennan matinn eða hinn, er verið að gefa í skin
að börnin okkar geti ekki farið eftir öðru en auglýsingum,
gætu þau ekki farið bara eftir því sem við segjum.

Ég mundi mundi hvetja foreldra fyrst og fremst til að
ala börnin sín upp í því að þessi og hinn maturinn sé óhollur,
og að hann sé ekki eins góður og auglýsingarnar benda til.
Útrætt mál. þetta er afar auðvelt, ef það er gert frá byrjun.
Ég tala nú ekki um ef þau fá ætíð hollan mat, þá vilja þau
ekki sjoppumat.

Við komum ekki til með að ráða við þessar auglýsingar,
þær eru allstaðar, það erum við sem þurfum að stjórna
okkar börnum og kenna þeim muninn á réttu og röngu,
við setjum reglurnar, ef við gerum það, þá verður þetta
ekkert vandamál.
Það er ekki hægt að mínu mati, er alþjóðasamfélagið er
komið inn á gafl hjá fólki, að ætlast til að aðrir en maður
sjálfur takist á við málin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Góður pistill.

Innilegar helgarkveðjur til þín elsku Milla.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.4.2008 kl. 11:30

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þetta er mjög góður pistill elsku Milla mín knús

Kristín Katla Árnadóttir, 18.4.2008 kl. 12:02

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ég hef nú ætið talið það okkar verk að stýra.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.4.2008 kl. 14:35

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk ynnilega sömuleiðis Jenný mín

katla vona að þú farir vel með þig.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.4.2008 kl. 14:37

5 Smámynd: Brynja skordal

Já mikið er ég sammála þér þarna góð skrif að vanda hjá þér milla mín

Brynja skordal, 18.4.2008 kl. 15:25

6 Smámynd: Tiger

  Já, góður pistill og mjög góðar pælingar! Auðvitað er það svo mikið rétt hjá þér að í raun er bara ein leið til að fá börn til að virða góðan og hollan mat - það er að ala þau upp í slíku mataræði frá upphafi. Satt að foreldrar ráða mjög miklu um það hvernig fæðu börnin venjast á uppvaxtaárunum og foreldrar hafa mikið að segja um hvort börnin alist upp í ruslfæði eða hollustu. Satt að við ráðum mest lítið við auglýsingarnar - en við ráðum flest öllu í vali á því fæði sem við venjum börnin okkar á .. Knús á þig Milla mín og eigðu yndislega helgi - vonandi fulla af daðri *blikk*..

Tiger, 18.4.2008 kl. 16:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.