Er einhver hissa á því!?

Ég held að það sé engin hissa á því að þessi maður
sé hataðasti maður Svíþjóðar.
Ef hann hefði myrt mitt barn, hefði ég hatað hann svo mikið
að ég hefði örugglega gert allt til að komast að honum,
og ganga frá þessu sjálf, held að það séu fyrstu viðbrögð
fólks,en margt kemur inn í til að stoppa mann í því.

Hatur er afar slæmt, er það ekki hatur sem er búið að verða
þess valdandi, í stríðum frá alda öðli að þúsundir barna eru myrt
með köldu blóði, vegna haturs á nágrannanum og af ýmsum öðrum
ástæðum sem allir vita af, og ætla ég ekki að fara að rifja það upp hér.

Það sem ég vildi sagt hafa að erum við ekki að reyna að útríma hatri,
Ég veit að það er erfitt, en við verðum að gera það samt.

Andres Eklund er stórhættulegur geðbilaður morðingi og er honum
örugglega sama um allt, efast um að hann skilji hvað hatur er.


mbl.is Hataðasti maður í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

Góðan daginn Milla mín. Ég held að það hljóti að vera virkilega erfitt að ráða við hatrið ef að barnið manns er drepið, ég yrði brjáluð og það eina sem kæmist að í kollinum væri að láta þann mann fá sömu örlög og barnið

Eigðu góðan dag

Huld S. Ringsted, 19.4.2008 kl. 08:42

2 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Góðan daginn Milla mín. Ég er svo hjartanalega sammála þér, ég held að ég mundi drepa þann sem að dræpi barnið mitt, hatur er það  versta sem til er ,EN, það skyldi engin snerta hár á höfði  míns barns, mér fynnst að sá sem drepur aðra manneskju eigi að hljóta sömu örlög. Guð blessi foreldra þessa barns.

Knús á þig elsku Milla mín

Kristín Gunnarsdóttir, 19.4.2008 kl. 08:48

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ég er svo sammála þessu stelpur mínar, maður getur ekki hugsað þá hugsun til enda hvað maður mundi gera ef?
Ég var bara að benda á að hatrið eyðileggur allt.
                    KnúsMilla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.4.2008 kl. 08:59

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já hatrið er mjög vont og er alveg sammála þér.

Knús inn í daginn

Kristín Katla Árnadóttir, 19.4.2008 kl. 09:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.