Fyrir svefninn.

Jóhanna var nemandi í Gagnfræðaskóla Austurbæjar.
Einu sinni segir hún móður sinni, að hún sé trúlofuð
einum af skólabræðrum sínum.
,, Hvað heitir hann?" spurði móðir hennar.
,, Hann heitir Jón", svaraði Jóhanna.
,, Og hvers son er hann?" spurði móðirin aftur.
,, Maður er nú ekki að spyrja um svoleiðis í gaggó",
svaraði stúlkan.

Magnús Torfason var að segja sögur í samkvæmi.
Eiríkur frá Hæli og Páll á Hjálmstöðum voru þar
viðstaddir.
Þá missti Magnús allt í einu þráðinn í sögu þeirri,
sem hann var að segja, og bað Eirík að segja sér,
hvar hann hefði verið í sögunni.
        Þá kvað Páll á Hjálmstöðum:

                      Barst mér andans bláþráður
                      bara að þessu sinni.
                      Finndu endann, Eiríkur,
                      á andans snældu minni.

                                              Góða nótt.Sleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Góða nótt ljúfa mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 3.5.2008 kl. 20:59

2 Smámynd: Tiger

 Takk mín kæra Milla fyrir kvöldnestið hérna, alltaf svo gott og ljúft að líta við hjá þér! Knús á þig og eigðu yndislega nótt og ljúfan sunnudag.

Tiger, 3.5.2008 kl. 21:28

3 Smámynd: Erna

Góða nótt Milla mín, gaman hefði verið að hitta ykkur í dag en ég var að vinna.

Erna, 3.5.2008 kl. 21:50

4 Smámynd: Sturla Snorrason

Góða nótt Milla

Sturla Snorrason, 3.5.2008 kl. 23:50

5 Smámynd: Brynja skordal

Loksins er ég komin til að tölvast á ný Góða nótt milla mín

Brynja skordal, 4.5.2008 kl. 00:25

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góðan daginn kæru vinir, vonandi hafið þið átt góða nótt, ég var vöknuð kl 5 í morgun, ekki óalgengt, það þýðir að ég þarf að leggja mig í dag, þá geri ég það bara.
En eigið þið yndislegan dag snúðar og snældur.
                           Milla.

          Love You A Tonþið gætuð farið í hvalaskoðun eða lautarferð, knúsí knús.                                        Picnic 





Guðrún Emilía Guðnadóttir, 4.5.2008 kl. 07:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband