Fyrir svefninn.

Guðmundur vinnumaður var svaðamenni og naumast
með réttu ráði við vín.
Einu sinni kom hann fullur heim úr ferðalagi og var
mjög æðisgengin.
Hann hleypur inn í hesthús á túninu.
Piltar tveir á bænum fara að gá að, hvað honum liði,
og er hann þá búin að hengja sig og dinglar í snörunni.
Þeir hlaupa til húsbónda síns og segja honum,
hvernig komið er.
,, Skáruð þið hann ekki niður?" spurði húsbóndinn.
,, nei", svaraði annar pilturinn. ,,Við þorðum það ekki,
Því hann var ekki alveg dauður".

Glímumenn úr Þingeyjarsýslu fóru til Akureyrar á
glímumót, en urðu ekki sigursælir.
Þá kvað Indriði Þórkelsson á Fjalli:

                Það má segja um þessa menn
                þeir eru ekki latir,
                tölta dægrin tvenn og þrenn
                til að liggja flatir.

                          Góða nótt.Sleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna

Góða nótt Milla mín.

Erna, 10.6.2008 kl. 20:53

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Góða nótt

Róslín A. Valdemarsdóttir, 10.6.2008 kl. 21:36

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Góða nótt elsku Milla mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 10.6.2008 kl. 22:21

4 Smámynd: Heiða  Þórðar

Góða nótt mín elskuleg

Heiða Þórðar, 10.6.2008 kl. 23:03

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

GÓÐUR  að vanda hann Indriði frændi  GN

Ásdís Sigurðardóttir, 10.6.2008 kl. 23:15

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

Góða nótt elsku Milla

Huld S. Ringsted, 10.6.2008 kl. 23:24

7 Smámynd: Tiger

   Ussuss ... það er nú spurning um hver var nú meiri svín - sá sem drakk vín - eða þeir sem létu greyið hanga áfram. En fyndið var það - þannig séð.

Knús á þig mín kæra Milla og eigðu yndislega nótt sem og ljúfan dag á morgun, það er víst góð spá og guli dóninn á víst að koma fram úr skýjum.

Tiger, 11.6.2008 kl. 02:47

8 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Gódann daginn.Ég er ávallt á skjön vid ykkur hin ...tid lesid á kvöldin en ég er upp svo snemma á morgnanna,Fer á fætur kl 5 alla morgna en tá er klukkan bara 3 hjá ykkur.

Knús á tig inn í gódann dag

Gudrún Hauksdótttir, 11.6.2008 kl. 05:29

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Við erum þá á sama róli Guðrún ég blogga hvorki eða les á kvöldin
enda fer ég ævilega snemma að sofa og á fætur kl. 6 en þá ert þú búin að vera á fótum í 3 tíma.
var að skoða myndirnar hjá þér og gistihúsið þitt er yndislegt,
og þykist ég alveg vita að þú sért góður vert.
                        Kveðjur til þín og góðan dag
                           Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.6.2008 kl. 08:40

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Tiger veistu að þetta voru snillingar hér áður og fyrr,
hvort voru þeir svona vitgrannir eða svona hræddir að þeir gerðu ekkert nema vera skipað það?
                       Knús til þín og góðan daginn snúðurinn míó míó
                                 Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.6.2008 kl. 08:44

11 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk fyrir innlitin elsku skjóðurnar mínar allar.
Ásdís mín þú hefur hæfileikana þína líklegast frá honum Indriða frænda þínum.
                      Góðan daginn til ykkar allra
                        Knús Milla.guys.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.6.2008 kl. 08:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.