Hjálp, lesið, hugsið og framkvæmið.
18.7.2008 | 15:43
Það er mé sönn ánægja að birta þessa beiðni
um hjálp.
Hjálp bloggvinir / Ert þú til í að birta þetta á þinni síðu?
Elísabet leitar nú eftir stuðningsmanneskju eða liðsveislu, eins og það er kallað. Liðsmaður er hugsaður sem félagslegur stuðningur og er um 16 tíma á mánuði að ræða. Er það samkomulagsatriði á milli Elísabetar og þess sem stuðninginn veitir hvernig þessum tíma er varðveitt og hvenær.
Það er í raun Reykjavíkurborg sem á að útvega stuðningsmanneskju en þeim hefur ekki tekist það og hefur Elísabet verið án þessarar þjónustu í 7 mánuði. Engin vilji er þar á bæ til að ganga lengra til að bjarga málunum. Þetta fellur ekki undir forgangsröð borgaryfirvalda. Það vitum við öll. Þetta skiptir hinsvegar öllu máli fyrir tilveru Elísabetar Sigmarsdóttur.
Viðkomandi hlýtur laun fyrir en samt óskum við eftir manneskju sem hefur áhuga á því að láta gott af sér leiða og gefa nærveru sína og félagsskap til þessarar fallegur og hugrökku vinkonu minnar.
Ef þú hefur tök á því og tíma, gerðu þá góðverk. Ef þú hefur verið að hugsa í mörg ár að þú ættir kannski að gefa eitthvað til baka þá er núna tækifærið.
Síminn hjá Elísabetu er: 587 - 6278 og netfangið:liso@internet.is eða þú getur sent mér (Halla Rut) E-mail: halla@kjosehf.is ef þú vilt frekari upplýsingar.
Ég hér bið ykkur öll um að birta þetta á ykkar síðu sem færslu ef þið sjáið ykkur það fært.
Og svo er bara líka "nice" að senda henni kveðju: Elísabet.
Með samhug og kærleik
Athugasemdir
Lady Vallý, vonandi finnst einhver sem vill gefa sig í þetta gleðistarf
og það eru fleiri sem þurfa á hjálp að halda.
KnúsMilla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.7.2008 kl. 17:52
Er einmitt búin að sjá þetta. Vona að það sé að hlýna hjá þér, meira gaman á Mærudögum þegar sólin skín. Hafðu það gott um helgina, já og bara alltaf, vonandi. Knús á þig kærleiksríka kona
Ásdís Sigurðardóttir, 18.7.2008 kl. 18:34
Ég henti einmitt inn hjá mér svipaðri færslu Milla mín. Það verður örugglega einhver góðhjartaður sem tekur eftir þessu og mun leggja hönd á plóg.
Knús á þig ljúfust og hafðu yndislega helgi!
Tiger, 18.7.2008 kl. 18:48
Takk fyrir hjálpina Guðrún.
Halla Rut , 18.7.2008 kl. 19:02
Ásdís mín vonandi verður gott í næstu viku, Mærudagarnir byrja á mánudaginn og megum ekki gleyma sænskum dögum sem byrja um leið.
Knús kæra vina knús til Bjarna.
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.7.2008 kl. 20:33
Tiger míó fór einmitt af þinni síðu inn á Höllu Rut, vonandi kemur eitthvað út úr þessu, þetta er það sem mér finnst gott við bloggið við getum hjálpað.
Knús til þín inn í góða helgi.
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.7.2008 kl. 20:36
Ekkert að þakka bara sjálfsagt.
Kveðja til þín og góða helgi.
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.7.2008 kl. 20:37
Vildi óska að ég gæti lagt eitthvað til en því miður allt of langt í burtu.
Bestu kveðjur til Höllu Rut og þín fyrir að hugsa svona vel
Ía Jóhannsdóttir, 18.7.2008 kl. 21:12
Ef þú byggir á Íslandi þá mundir þú örugglega hjálpa til,
ég vildi óska að ég gæti gert svona lagað, en heilsan leifir það ekki.
Get bara hjálpað til á blogginu.
Góða helgi Ía mín
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.7.2008 kl. 21:36
Sæl og blessuð.
Guð blessi þig fyrir að hjálpa Elísabet með að birta greinina hennar Höllu Rut.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 19.7.2008 kl. 00:05
Blessi þig Rósa mín sömuleiðis.
Ég veit nú ekki til hvers við erum ef ekki til að hjálpa öðrum og segja það sem okkur finnst svona inn á milli.
Kærleik til þín Rósa mín.
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.7.2008 kl. 08:04
Hvað ef við....svona fimm, tökum þetta að okkur saman?.......
Halla Rut , 19.7.2008 kl. 20:40
Halla Rut búin að komenta til þín á síðunni þinni.
Auðvitað er ég með, láttu mig bara vita hvernig þið ætlið að fara að þessu.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.7.2008 kl. 21:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.