Fyrir svefninn.

Söngstjóri nokkur var að æfa kór og lagði fyrir að
syngja ákveðið lag.
Nokkrir menn úr kórnum færðust undan því og vildu
syngja annað lag.
Söngstjórinn, sem var bráðlyndur maður, sagði þá:
,, Þið syngið bara þetta lag steinþegjandi og hljóðalaust".

>> Ef fjandinn hitti okkur nú, hvorn okkar heldur þú að
hann tæki fyrst?<<
>> =g sjálfsagt mig, hann er altaf viss um þig,<<
svaraði Guðmundur.

Kona Guðmundar hljóp eitt sinn frá honum.
>> hvernig ferðu nú að, guðmundur minn,
þegar þú ert orðin einn,<< spurði kunningi hans,
sem hitti hann skömmu síðar á förnum vegi.
>> O jeg fæ mér bara prímus,<< svaraði Guðmundur.

          Átti að gera vísu um forsætisráðherra.

                  Pólitík elska ég ekki
                  né arka með loforðasekki
                  og illa ég kann
                  að yrkja um mann
                  sem andskotann ekkert ég þekki.

Þessi er nú eftir hana Ósk.
                                               Góða nótt.Sleeping

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Góða nótt

Róslín A. Valdemarsdóttir, 21.7.2008 kl. 20:44

2 Smámynd: Tiger

  Ohh .. bara ef það væri hægt að láta suma "listamenn" kyrja sín lög steinþegjandi sko .. þá væri nú gaman!

Er að renna yfir aðrar færslur hjá þér Millan mín - knús á þig og hafðu yndislega nótt!

Tiger, 21.7.2008 kl. 20:52

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Óskin góð að vanda  GN

Ásdís Sigurðardóttir, 21.7.2008 kl. 21:01

4 Smámynd: Erna

Góða nótt Milla mín

Erna, 21.7.2008 kl. 21:15

5 Smámynd: Brynja skordal

Góða nótt Milla mín

Brynja skordal, 21.7.2008 kl. 22:20

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 21.7.2008 kl. 23:37

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góða nótt Milla mín

Sigrún Jónsdóttir, 22.7.2008 kl. 00:41

8 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Góða nóttina elsku Milla mín og megi allar góðar vættir yfir þér vaka og vernda elskan mín

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 22.7.2008 kl. 01:03

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Knús Rósin mín

Tiger það væri nú munur, knús í daginn.

Ásdís mín hún Ósk á enga vísuna um hann afa þinn

Knús Erna mín.

Þú ert nú meiri prakkarinn þær eru engir villingar englarnir hennar ömmu sinnar, og þú veist það þú elskar þessar stelpur meira en lífið í sjálfri þér, og ég elska þig dóttir mín góð.

Knús Brynja mín.

Huld mín hafðu það sem best í öllum önnunum, sjáumst.

Sigrún mín við Ásdís látum þig vita er búið er að kóna okkur
Þá getur þú fengið eintak á vinnustaðinn þinn, knús

Elsku Linda knús
                Eigið öll yndislegan dag
                     Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 22.7.2008 kl. 08:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband