Myndablogg bara smá prufa.




Sigrún LeaGuðrún Emilía

Milla frænka tók þessar myndir af frænkunum sínum
í tilefni af 17 ára afmælinu þeirra, Milla er myndatöku snillingurinn í fjölskyldunni.


v

Þetta er ljósálfurinn mínn hún Viktoria Ósk að baða sig í
Eyvíkurfjörunni, það er svaka fjör.

a

Og þetta er litla ljósið hennar ömmu sinnar Aþena Marey
líka að baða sig.

Þetta er bara prufa hjá mér kann svo lítið að setja inn myndir
en það kemur.

Knús knús
Milla.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þessar myndir eru flottar.  Ég hlakka til að fá fleiri "myndablogg" frá þér Milla mín

Sigrún Jónsdóttir, 4.8.2008 kl. 14:08

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Flottar myndir af fallegum stúlkum.  En nú öfunda ég ykkur, Eyvíkurfjaran er mín uppáhalds, þarna gengum við systur um með pabba og síðan börnum okkar líka mörgum sinnum.  Við erum líka búnar að ganga báða höfðana með pabba og auðvitað miklu fleira því hann var alltaf með okkur í ferðum um sveitirnar.  Njóttu víkurinnar minnar, uni þér vel að fá að dvelja þarna í góðum félagsskap.  Kveðja og knús inn í  daginn, látt þér batna sem fyrst 

Ásdís Sigurðardóttir, 4.8.2008 kl. 14:38

3 Smámynd: Dísa Dóra

Vá hvað þetta eru fallegar myndir

Dísa Dóra, 4.8.2008 kl. 15:47

4 Smámynd: Brynja skordal

þetta eru fallegar myndir enda Fallegar fyrirsætur þarna á ferð sé að þú ert búinn að vera veik vonandi er þetta að batna Milla mín

Brynja skordal, 4.8.2008 kl. 17:33

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk fyrir Sigrún mín ég er að læra þetta á bara eftir að læra að taka myndir af picasa 2 myndasíðunni minni þá er ég seif, en ég á ekki digital myndavél ,,annars væri nú bara allt á fullu hér", svo að ég er háð Millu minni og englunum mínum að láta inn myndir hjá mér

Eyvíkurfjaran er flott, manstu Ásdís er gamli vegurinn var, þá var svo hátt niður í fjöru frá veginum, nú er þetta allt orðið breitt.

knús til þín Dísa Dóra mín.

takk Brynja mín það er guðs þakkar vert er maður eignast heilbryggt fólk og það skaðar ekki að það sé fallegt.

Heilsan hún er ekki upp á marga fiskana, er búin að vera meira og minna í rúminu í dag, er enn þá flökurt þó ég sé hætt að æla
gleymdi að taka hjartameðulin í gærkveldi, var slæm í nótt, fattaði ekkert fyrr en í morgunn er ég tók morgunlyfin, en þetta líður hjá.

Knús knús
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 4.8.2008 kl. 18:01

6 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Dásamlegt að sjá náttúrubörnin í náttúrunni. Flott framtak hjá þér elsku Milla frænka og láttu þér nú batna vel. kveðja eb

Eva Benjamínsdóttir, 4.8.2008 kl. 20:19

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk Eva mín, það kemur meira með tímanum.
Vonandi batnar mér sem fyrst.
Kveðja
Þín frænka Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 4.8.2008 kl. 20:45

8 identicon

Fallegar þessar myndir og stelpurnar á þeim Milla mín.

Eigðu góðan dag. Knús og kveðjur

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 5.8.2008 kl. 10:39

9 identicon

Þegar þú setur inn myndir og lætur þær í miðjuna þá þarf að minnka þær niður í ca það pláss sem er á síðunni þinni. Það fer eftir sniðinu á síðunni hvað þær geta verið stórar. Eins og síðan þín er núna þá er þetta 480 pixlar á breidd. Þá getur þú valið myndina inn jafn stóra og hún er og sett hana á miðjuna. Þá sleppur hún við að lenda inn á auglýsingunni.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 5.8.2008 kl. 12:51

10 Smámynd: Björgvin Þorgrímsson

Gaman að sjá hvað elsku systur minar eru að stækka.

kv.

Björgvin

Björgvin Þorgrímsson, 8.8.2008 kl. 00:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.