Árla á sunnudagsmorgni, þvílíkur friður.

Sporðdreki: Þú getur ekki verið öllu fólki allt.
Veittu það sem þú vilt veita og getur veitt.
Gefðu það sem þú vilt sjálfur fá, það sem þú
telur stórkostleg og öðrum finnst það líka
.

Er ég settist að morgunverði  5.30 í morgunn og horfði út um
gluggann og leit yfir Skjálfandann yfir í Kinnafjöllin sem sólin
var sífellt að verða bjartari yfir, fann ég hinn innri frið, fylltist
krafti og eldmóð, ekki í fyrsta skiptið, krafturinn og dulúðin yfir
þessum fjöllum er engu lík, þú getur horft á þau tímunum saman
og þau eru aldrei eins, enda tel ég að þarna búi allt það sem í
náttúrunni býr sem við aldrei augum lítum, eða þannig
.

Svo opnar maður blöðin síðan í gær, jú og les og les, þar til síðan
kemur með ruglinu.
Hvernig í ósköpunum er hægt að framhalda öllu þessu rugli.
Af hverju heyrðum við aldrei línu Ólafs áður, fyrst núna erum við
til dæmis að heyra að hann hafi viljað bíða með að kaupa gömlu húsin,
að hann hafi boðið að Magnús Þór yrði aðstoðarmaður hans líka,
skildi hann líka hafa boðið að tala við fólk og meðstjórnendur áður
en hann réðst í að reka og ráða fólk jafnframt því að framkvæma upp
á sínar eigin spýtur.

Björn Ingi snýr ekki aftur, bauðst honum það? það hefði nú verið
hápunkturinn, ég meina það eru engin takmörk?
Eitthvað eru þeir í vandræðum í framsókn þurfa aftur í 4 sæti til að fá
hugsanlega, einhvern á bak við Óskar, það gengur eigi betur en síðast
er Margrét neitaði að bakka upp Ólaf og er ég eigi undrandi á því.

Jakob og Gunnar Smári halda áfram, það er nú kannski eins gott þá þarf
ekki að borga  þeim biðlaun ofan á öll önnur útgjöld varðandi mesta endemis
rugl sem uppi hefur verið.

Eitt en nefni ég hér sem að mínu mati er stór blettur á okkar þjóðfélagi,
lygin og aftur lygin, allir segja eitthvað slæmt um hvort annað,
getur aldrei neinn axlað sína eigin ábyrgð og komið fram og sagt
sannleikann, nei því öllu þessu fólki er stjórnað eins og strengjabrúðum.
Það er kannski bara ekki búið að fatta það enn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Góðan daginn Milla mín, mikið öfunda ég þig af útsýninu, ég sá þessi fallegu fjölll fyrir mér og svo kyrrðin maður minn, hér er kyrrð en útsýnið eru bara blokkir og aftur blokkir og ekki eru fjöllin her, því miður.

Kærleiksknus

Kristín Gunnarsdóttir, 17.8.2008 kl. 07:59

2 Smámynd: Ásgerður

Það þyrfti að kenna þessu fólki að heiðarleiki er dyggð,,og það að það líður engum vel í hjartanu ef heiðarleiki er ekki með í daglegu lífi,,eða það er mín reynsla.

Það skiptir engu máli hvort fólk er í pólitík eða ekki heiðarleikinn ætti alltaf að vera í fyrsta sæti,,,en það er bara ég  , hvað veit ég svo sem um pólitík?

Þú þyrftir að bjóða þessu fólki í morgunkaffi til þín Milla, og vita hvort hægt væra að kýla í þau smá innri ró , nei segi bara svona.

Knús á þig kæra frænka

Ásgerður , 17.8.2008 kl. 09:04

3 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Góðan daginn elsku Milla mín og áttu góðan sunnudag

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 17.8.2008 kl. 09:09

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Stína mín þú verður bara að fara að koma þér í burtu, þó þú fáir ekki fjöll á öðrum stað þá kannski breytist þetta eitthvað
Knús til þín
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.8.2008 kl. 09:10

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ásgerður mín það þýddi nú lítið að bjóða þessu fólki kaffi, við mundum bara hafa gaman smá tíma svo færi það allt í sama farið aftur.

Auðvitað veist þú margt um pólitík, það er allt tík hvar sem maður ber niður, en heiðarleikann vantar, það getur engin borið ábyrgð á sínum gjörðum og bara sagt það.

Knús kveðjur til þín frænka mín
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.8.2008 kl. 09:16

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Linda mín sömuleiðis. knús Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.8.2008 kl. 09:17

7 Smámynd: M

Góðan daginn Milla.

Maður er hættur að skilja upp né niður í þessu. Hverjir segja satt og hverjir ekki. Allir að svíkja alla og framapot á hæsta máta.  Og hver borgar svo brúsann ?

Maður á ekki að láta þetta eyðileggja daginn

M, 17.8.2008 kl. 09:36

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Nei auðvitað hefur maður það bara finnt í dag.
Knús Emmið mitt.
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.8.2008 kl. 12:42

9 Smámynd: Solla Guðjóns

Hæjj...Jú ætli þetta rugl í höfuðborginni hafi ekki eitthvað með óheiðarleika að gera.

Eigðu góðan dag ljúfust.

Solla Guðjóns, 17.8.2008 kl. 13:13

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Auðvitað er óheiðarleiki með í spilinu og ætli það hafi ekki ætíð verið og í raun alveg sama hver er  í þessum pólitíska farsa. Ég er nú eins og þið vitið hlynnt gömlum húsum og uppbyggingu þeirra, en það var kannski óþarfi að kaupa þau á slíkan pening, en hvað skildi lóð kosta við laugaveginn?
Hvað eru þessi smartkortagerð, hef alveg misst af því.
Knús í daginn
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.8.2008 kl. 14:28

11 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já þetta kalla ég sko klúður á kostnað fólksins.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.8.2008 kl. 16:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband