Laxerolía og nytsemi hennar.
17.8.2008 | 17:07
Ekki er hægt að kynna sér alþýðuheilsufræði í mörg ár án
þess að fá áhuga fyrir laxerolíu vegna þess, hve margvíslega
lækningahæfileika hún hefur.
Þá á ég ekki við hin gamalkunnu innvortis áhrif sem allir þekkja,
heldur útvortis, á húðina og vefina undir henni.
Notkunarvenjur laxerolíunnar eru þessar.
Við vörtum er hún borin á og nudduð vel inn,
eftir nokkrar vikur er vartan horfin og það sama gildir um fæðingarbletti.
Hún er afbragðs góð á geirvörtur kvenna sem eru með barn á brjósti,
einnig á nafla ungbarna ef hann grær seint.
Á útvortis æxli, og ef auga er rautt og aumt er gott að láta leka einn dropa
í það.
Ef hárvöxtur er lítill á börnum er það heillaráð að bera olíuna í hárið
tvisvar í viku, alllangan tíma.
Á augabrúnir og augnhár þrisvar í viku fyrir svefn, gerir gæfumun,
það sama gildir um hár fullorðinna.
laxerolía er einnig góð á sár, skurði, skeinur og frábær tilmýkingar
gyllinæð.
þreyttar fætur heillaráð að nudda vel af olíunni inn í fætur og sofa
síðan í háum sokkum sem ekki halda að fótum og leggjum.
Hún mýkir líka líkþorn.
Er ég var yngri þá þjáðist ég af miklum handaþurrki sem orsakaði
sprungur og skurði, ég bar á mig olíuna og setti upp bómullarhanska
og svaf svona, ég veit þetta er ekki sexí en það er heldur ekki sexí
að vera með blæðandi sár á höndum og fótum.
Þegar Dóra mín var lítil þá var hennar hár hrikalega þunnt og lengi
að vaxa, tók mig til einn daginn og nærri snoðaði litlu stelpuna mína
bar svo í hana olíuna, hún fékk afar fallegt og þykkt hár og er með
það enn þá. laxerolían var ætíð til á mínu heimili, því hún er allra
meina bót, SKO, útvortis.
Ég hef sannfærst meir og meir um gildi notkunar olíu yfirhöfuð,
umhugsunarefni er að alþýðuheilsufræðin er sprottin upp úr
gnægð tiltækra varna og lækningameðala sem náttúran hefur upp
á að bjóða. Olíur eru í jurtum hvar sem litið er.
Ef við áttum okkur á því að náttúran er alvitur,
þurfum við eigi að spyrja okkur sjálf, hvort þetta eða hitt komi að gagni.
Náttúran sér fyrir því.
Gangi ykkur vel.
Athugasemdir
Elsku Milla, takk fyrir þetta, mun notfæra mér þetta.
Góða nótt
Kristín Gunnarsdóttir, 17.8.2008 kl. 18:57
Takk fyrir þessi ráð elsku Milla mín, kem sko alveg örugglega til með að nota þau.
Knús
Helga skjol, 17.8.2008 kl. 20:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.