Höfundur
Tenglar
mbl.is
- Myndasíða Millu
- Pullip Myndasíða Sigrúnar og Guðrúnar
- http://123.is/641 Frábær síða gerð af bónda einum í Reykjadal.
- http://vf.is/ Suðurnesjablað
- http://245.is/ Sandgerðis fréttir
vinur
Fyrir svefninn.
17.8.2008 | 19:38
Þeir fóru í berjamó í dag engillinn og tengdasonur minn elskulegur,
á sjálfsögðu út á Tjörnes og fengu helmingi meira af berjum
í dag heldur en í gær, svo það eru komnir 8 l. af berjum.
Mun sulta úr því á þriðjudaginn, því við erum að fara til Akureyrar
eldsnemma í fyrramálið, Gísli er að fara í einhverja ómskoðun.
Dóra mín mun fara með okkur, og eitthvað verður útréttað.
Biðja ykkur um að lesa pistilinn um laxerolíu og nytsemi hennar
hér á undan, hann er góður fyrir alla að vita.
Að halda við hagmælskunni.
Arfleifð megum aldrei týna,
enda sést á vorum þingum
að það að láta ljós sitt skína
líkar flestum hagyrðingum.
Slæmar horfur.
Dregur að elli, dofnar sex,
dapurt er það að vita.
Andinn rýrnar, ekkert vex
annað en miðjufita.
Þessar eru eftir hana Ósk.
Góða nótt við heyrumst annað kvöld.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 832655
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- Steinsteypu borgarþróun kölluð græn
- Hæstaréttardómari götunnar
- Bæn dagsins...
- Af innherjaverki & landráðum
- Tvö (misheppnuð?) stefnumót
- Kvenraunir í slabbi, útskrift og ... bláar myndir
- Breytt Bretland í breyttum sakamálaheimi
- Bæn dagsins...
- Norskir kratar svíkja allt sem hægt er að svíkja.
- Grænsanseruð veðurviðvörun
- Tíska : Baksviðs á sýningu WALTER VON BEIRENDONCK á tískuviku
- Stjórnmálaflokkar og styrkir til þeirra
- ER EKKI TIMI TIL KOMINN AÐ VIÐ ENDURSKOÐUM FISKVEIÐISTJÓRNUNARKERFIÐ???
- Varnir þarf að efla
- Kínverska gervigreindin í köldu stríði
Athugasemdir
Ég hef heyrt margt gott látið af laxerolíunni t.d. að bera hana á liði sem eru stirðir og fleira. Það er svo gott að láta minna sig á svona ráð Milla mín vegna þess að maður gleymir því jafn óðum ef það er ekki skrifað niður. Góða nótt og gangi ykkur vel á morgun.
Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 17.8.2008 kl. 20:32
Góða nótt Milla mín
Sigrún Jónsdóttir, 17.8.2008 kl. 20:46
Laxerolía já en ætli olívuolía gera bara ekki sama gagn.
Kveðja inn í nóttina Milla mín
Ía Jóhannsdóttir, 17.8.2008 kl. 20:52
Góða nótt elsku Milla og góða ferð á Eyrina á morgun.
Ásdís Sigurðardóttir, 17.8.2008 kl. 23:15
Takk elskurnar mínar , Já Jónína mín gleymdi ég að taka það fram, með að bera hana á liðina, en það stendur einnig.
Ía mín ég hef reynt báðar og ólífuolían gerir ekki sama gagn við ofþurrki í húð, en hún er afar holl til inntöku sko ólífuolían, góð fyrir liðina og meltingarveginn ásamt mörgu öðru.
Ferðin gekk bara vel á Eyrina, Gísli fær að vita hvað er að er læknirinn hringir.
Knús kveðjur
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.8.2008 kl. 17:47
Það er gott að vita þetta um Laxerolíuna takk fyrir Milla mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 18.8.2008 kl. 19:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.