Höfundur
Tenglar
mbl.is
- Myndasíða Millu
- Pullip Myndasíða Sigrúnar og Guðrúnar
- http://123.is/641 Frábær síða gerð af bónda einum í Reykjadal.
- http://vf.is/ Suðurnesjablað
- http://245.is/ Sandgerðis fréttir
vinur
Fyrir svefninn.
30.3.2009 | 20:31
Þessi er tekinn út um eldhúsgluggann mjög skemmtilegt.
maður sér ekki út yfir skjálfandann og yfir í Kinnafjöllin.
Þessi út um vaskahúsdyrnar, Gísli mokaði smá svo Neró gæti pissað.
þessi út um stofugluggann skaflinn nær alveg upp í horninu.
Bíllinn er í fínum snjóbílskúr tekið út um útidyrnar og skaflinn
fyrir aftan er jafn hár bílnum svo við komumst ekki neitt.
Verð að setja þessa inn, tekin af Millu minni af Viktoríu Ósk
bakgrunnur þessi er mixaður áður en myndinni af henni er sett inn.
Eina góða við snjóinn er að hann einangrar svo að maður lækkar
í öllum ofnum.
Stökur
Sætum lags við ljós og yl
Bjarni Halldórsson, Uppsölum
lífgum hagsins brautir.
Látum bragsins léttu spil
lina dagsins þrautir.
Silfrið bjart við heimi hlær,
hefir margt að bjóða,
en ekkert skartað auður fær
á við hjartað góða.
( 1898-1987
Góða nótt kæru vinir
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- Grafir
- Það er rétt að halda til haga NÝRRI FJÁRMÁLAÁÆTLUN sitjandi ríkisstjórnar:
- Réttindi kvenna þarf að vernda...
- Var aðförin að Ásthildi Lóu skipulögð?
- Maddömur tvær og fjármögnun flokka
- 100 dagar
- Kunninginn bankar enn
- Bæn dagsins...
- Stórmennin frægð ei í falla, ljóð frá 5. febrúar 2018.
- Sonur Guðs - Ísrael sem við elskum
- Inngilding á Ráðhústorginu
- Tími Marshallaðstoðarinnar er liðinn.
- Munu dómarar hjá ESB ákveða hver má bjóða fram á Íslandi
- Trump tekinn til fyrirmyndar
- Næstu mót
Nýjustu albúmin
Eldri færslur
2023
2021
2020
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Innskráning
Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.
Athugasemdir
Úpps, það er vetur hjá þér mín kæra, ekki svona mikill snjór hjá mér, ekki nálægt því :) Falleg mynd af skvísunni
Góða nótt mín kæra og vona að það vori fljótlega....
Erna Friðriksdóttir, 30.3.2009 kl. 21:01
Ætla sko að vona það Erna mín.
Milla
Knús
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 30.3.2009 kl. 21:07
Ja hérna, ég heyrði að það væri mikill snjór hjá ykkur en þetta er ekkert smáræði. Eins gott að reyna ekki að setja niður kartöflur í þessu veðri, þú verður bara að nota hækjuna til að grafa þig út Millan mín.
Góða nótt og sofðu rótt í alla nótt.

Auður Proppé, 30.3.2009 kl. 21:43
Auður með húmör, þú yrðir nú fín með hækjuna í snjósköflunum
Flottar myndir.
Hafðu það gott
Anna Guðný , 30.3.2009 kl. 22:48
Það er nú gott að fá snjó ef maður þarf ekki út í hann, hér eru skaflarnir upp á miðja glugga. En gott að þetta er ekki alltaf svona.
Kvitt og kveðja.
Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 31.3.2009 kl. 00:23
Ég fer bara ekkert út Auður mín

Já ég mundi sko spjara mig ef ég þyrfti
myndirnar sýna ástandið.
Já voru ekki bara allir inni á Skerinu í gær
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.3.2009 kl. 09:55
Milla mín hvað ertu að gera með allan þennan snjó
Og flott myndin af Viktoríu Ósk ,og það er mikið fallegt nafn ,enda hún gullfalleg 
Óla
Ólöf Karlsdóttir, 31.3.2009 kl. 15:31
Takk Óla mín, en snjórin er mikill og ekki spáir hann gæfulega fram að helgi.
Knús til þín og Völu
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.3.2009 kl. 19:09
Dapurt að heyra Hólmdís. Mikið slæmt að missa þína starfskrafta en Noregur nýtur góðs af. Trúi því að þú þurfir að kveðja víkina og pant fá að hitta þig,gæti verið gaman að "baukast"
Bestu kveðjur. Magga.
magga (IP-tala skráð) 31.3.2009 kl. 21:50
Eitthvað skolast til hér Magga mín, en allt í lagi bara efast um að Hólmdís lesi þetta hér.
Kveðjur til þín
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.4.2009 kl. 07:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.