Fyrir svefninn

Vorum að koma heim úr svaka pizzu-veislu hjá Millu.
Ég mun ekki hafa svo mikinn tíma til að vera í tölvunni
en mun örugglega reyna eins og ég get að fylgjast með.
Gísli minn fór í dag að sækja þær, þá vorum við búin að pússa
allt, skipta á rúmum, róbóta og skúra.

Fórum reyndar fyrst í morgun ég í þjálfun og Gísli í blóðprufu.

Læt hér fylgja kvæði um vorið sem mér finnst afar fallegt

                           Þegar vorið kom

Leyst úr dróma lífið er,
lifna blóm í hlíðum.
Söngur ómar sífellt hér
sælt með rómi blíðum.

Sól að unni sigur skær,
syngur í runni lóa.
Andar sunnan blíður blær
svo blómin kunni að gróa.

Gengin man ég gæfuspor
og glaða æsku mína.
Ertu að koma, elsku vor
með ástardrauma þína.

Báran kyssir bláan sand,
býst við sumri nýju.
Þetta er bjart og blessað land

baðað sólarhlýju.


Ingibjörg Halldóra Tómasdóttir, Brenniborg

(Björnssonar frá Spáná, 1911-1999)

Góða nótt kæru vinir
HeartSleepingHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Auður Proppé

Dugnaðurinn alltaf í ykkur Gísla, Millu pizzuveisla hljómar vel.  Vona að þú finnir tíma í tölvuna, getum ekki verið án þín mín kæra. Yndislegt ljóð, yljar mér að hugsa um vorið.

Góða nótt og sofðu rótt í alla nótt.

Auður Proppé, 3.4.2009 kl. 22:46

2 Smámynd: Guðrún Jónína Eiríksdóttir

Kvitt og kveðja

Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 3.4.2009 kl. 23:50

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

knús og kveðjur

Sigrún Jónsdóttir, 4.4.2009 kl. 00:05

4 identicon

Ha ha ég náði að kvitta seinna en Vallý.  Dreymi þig fallega drauma elskuleg og láttu þær nú stelpurnar stjana við þig á morgun.  
Gott að það er farin að koma vorhugur í þig þrátt fyrir að þú búir í snjóhúsi. 

Sofðu vel og hafðu ljúfa drauma.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 4.4.2009 kl. 00:14

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góðan daginn elskurnar mínar, skila kveðjunni Vallý mín,

Auður mín, hélt þú ætlaðir að hætta en gott að vita að svo er ekki.

Dúna mín og Sigrún ljós til ykkar

Jónína mín það er löngu komið vor í mig en veðráttan vildi bara ekki skilja það.
Ljós til þín ljúfust.

Gleði í daginn kæru mínar

Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 4.4.2009 kl. 07:35

6 Smámynd: Auður Proppé

Milla mín, er ekki alltaf hægt að hætta við að hætta?   Enda er orðið svo mikil hasar inni á blogginu mínu að ég get eiginlega ekki hætt.

Auður Proppé, 4.4.2009 kl. 09:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband