Fyrir svefninn.
4.4.2009 | 20:24
Í morgun um tíu leitið hringdi síminn er við sátum hér mæðgur
í sitt hvorri tölvunni, það var Erla frænka okkar að spyrja hvort
hún mætti koma í heimsókn í dag. Já auðvitað við vorum ekki
að fara neitt.Hún kom um nónbil og var hafður til brunch, sátum
við síðan og borðuðum,spjölluðum í marga klukkutíma.
Milla og ljósin mín komu einnig.
Þær frænkur voru aðallega í því að rifja upp hin ýmsu prakkarastrik
og stríðins-púkahátt sem þessum einum var lagið, ég þóttist afar
hneyksluð, en bætti ýmsu við.
Núna er maður bara farin að geispa enda ekkert undarlegt við það
verandi búin að borða óhollustu í allan dag og enda á kvöldmat sem
samanstóð af frönskum og steiktum laukhringjum.
Erla er bróðurdóttir mín og býr á Akureyri ásamt manni og uppkomnum
börnum. Hún er dóttir Þorgilsar bróður míns hann er næstur mér og
býr í Svarvaðadal ásamt sinni kvinnu.
*******************************
Ást og kynlíf
,, Guð hjálpi yður, kona. Af hverju hættuð þér ekki
Þegar komið var eitt."
Ónefndur sýslumaður að skamma konu sem hafði
eignast tvíbura í lausaleik.
*****
,, Þegar ég var ungur hafði ég ákaflega gaman af að dansa.
Einkennilegt var það með mig að mig langaði alltaf til að
dansa við laglegustu stúlkurnar og hef ég aldrei fundið það
eins vel og þegar maður dansar hvað nauðsynlegt það er
að það sé góð samvinna á milli fótanna."
Úr ræðu virðulegs góðborgara í gullbrúðkaupi æskuvinar hans.
*****
,, Gættu þín svo, hróið mitt, að hann Þorsteinn barni þig ekki."
,, Já hann er manna vísastur til þess--og þau hjónin bæði."
Foreldrar að kveðja dóttur sína sem var að fara í vist
til hreppstjórans.
Góða nótt kæru vinir
Athugasemdir
Greinilega góður dagur hjá ykkur. Góða nótt og sofið öll rótt.

Auður Proppé, 4.4.2009 kl. 20:40
Eg sef í stofusófanum í nótt.
Góða nótt Milla mín 0g þið öll í kærleikskoti.
Erna, 4.4.2009 kl. 21:31
Góða nótt Milla mín
Sigrún Jónsdóttir, 5.4.2009 kl. 00:28
Góða nótt í kærleikskot ,Knúsý knús ,og faðmaðu dúllurnar mínar allar
Óla og vala
Ólöf Karlsdóttir, 5.4.2009 kl. 01:01
Auður mín það var það
Knús í þinn dag
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.4.2009 kl. 06:42
Erna mín í stofusófanum elskan eru gestir? ekki ertu komin heim?
Ég sit ein hérna núna engin vaknaður nema verkjabjálfinn ég.
Ljós til þín elsku Erna mín.
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.4.2009 kl. 06:45
Sigrún mín allt gott í daginn þinn
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.4.2009 kl. 06:46
Vallý mín þú veist hvað ég er góður stjórnandi

Ljós í daginn
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.4.2009 kl. 06:49
Óla mín kærleikskotið tekur við kveðjunum og knúsar þig á móti og ekki Völu síður
Þín Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.4.2009 kl. 06:50
Hehehehe gott að vakna við svona lestur.
Ía Jóhannsdóttir, 5.4.2009 kl. 08:06
Ljósið yfir til þín ljúfust
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.4.2009 kl. 09:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.