Fyrir svefninn
20.4.2009 | 20:37
Orðsnilld er ævilega skemmtileg hvort sem hún er mælt
af snilli eða vandræðaskap.
Hér koma nokkur öfugsnúin.
,, Veiga mín! hvað er að sjá þig, berlæruð upp á axlir?"
Benedikt Helgi Magnússon, frá Kolbeinslæk í Súðavík,
við Rannveigu Jónsdóttur ljósmóður í þorpinu, en hún
var þá að sjóða slátur og því léttklædd, er hann bankaði
upp á.
,,Það er hver höndin uppi á móti annarri við að hjálpa hinni."
Þórarinn Kristjánsson, sem bjó á Hólum í Geiradal, þegar
hann lýsti eitt sinn samstöðu og hjálpsemi sveitunga sinna.
,,Það var svo mikill bylur að það sást ekki á milli augna og ég
varð að með opinn hausinn út um gluggann."
Guðbjartur Jónsson á Flateyri, stofnandi og um skeið
eigandi hins vinsæla veitingahúss, Vagninn.
,, Mig hlustar í boruna." sagði karlinn. ,,Ég heyri bráðum mannslát.
Kannski það verði látið mitt."
Annars er ég bara góð fór í þjálfun um hádegisbil kom heim og við
snörluðum, síðan aðeins í tölvuna, ég hélt mér ekki vakandi fór
inn í gestarúm og svaf til klukkan fjögur með Neró mér við hlið.
Síðan fengum við okkur gamla settið súpu og brauð í kvöldmat.
Gísli minn er að hlusta á vitleysingana í sjónvarpinu, hann ætlar
sko að kjós, en ekki ég.
Góða nótt kæru vinir og látið ljósið skína.
Athugasemdir
Ég hlustaði á vitleysuna eins og Gísli veit samt ekkert hvort eða hvað ég á að kjósa. Knús og kveðja á Húsavíkina.
Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 21.4.2009 kl. 00:01
Knús og kveðjur Milla mín
Sigrún Jónsdóttir, 21.4.2009 kl. 00:33
Daginn Milla gott að hlægja í morgunssárið. Einn er ssvona Kristmundur hét maður í Eyjum og var alltaf óðamála. Hann átti dóttir sem var fl´nk í sundi. Eihverju sinni stakk hún sér til sunds flott og karlinn sagði: Horfið á hana Sigríði dóttir mína horfið á hana allri á hana allir á hana.
Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 07:31
Knús til þín Dúna mín vertu bara heima eins og ég
Sigrún mín knús í daginn þinn
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.4.2009 kl. 09:42
Góð þessi Hallgerður mín og satt segir þú það er gott að hlæja í morgunsárið.
Ljós í daginn þinn
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.4.2009 kl. 09:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.