Fyrir svefninn

Var rétt búin í sjæningunni sem fór frekar seint fram í
morgun, er síminn hringdi og var það ekki Vinkona mín
frá því í Sandgerði í den, hún Bjarnveig sem er ábúandi
á Ytra Álandi í þistilfirði, við höfðum ekki sést í ein 15 ár.

Hún hafði farið með bílinn í viðgerð og labbað síðan niður
í Esar sá Millu mína sem þar vinnur, datt þá í hug að
heimsækja mig, ég sótti hana niður eftir og áttum við
yndislega stund saman, fengum okkur kaffi og brauð
spjölluðum og hlógum.

Aðalheiður vinkona mín kom svo um eitt leitið, hún var svo
glöð og ég svo stolt af henni er hún sagði mér að hún hefði
náð prófunum og væri að útskrifast með hvítu húfuna.

                       Á heimaslóðum

Glitra um völlinn breiður blóma,
blunda tröll í gljúfraþröng.
Rán er öll í einum ljóma
ölduföllin hæg og löng.

Roðinn gullnum aftaneldi
ægir faðmar skrýdda jörð.
Held ég einn á kyrru kveldi
kæran fram í Skagafjörð.

Hlæja við mér hólmsins lendur,
hlíðar opna faðminn sinn.
Og mig bjóða á báðar hendur
blessuð fjöllin velkominn.


        Frímann Jónasson frá Fremri Kotum
                       (1901-1988)

Góða nótt kæru vinir
HeartSleepingHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Guðnason

Fallegt,nú svona rétt fyrir svefninn,þú skilur ekki satt,Guðrún mín,Guð verði með ykkur öllum,líka þessum sem þú hefur afnot á,þú skilur ekki satt,HA HA HA HE HE HE HA.

Jóhannes Guðnason, 13.5.2009 kl. 22:49

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk fyrir þetta og GN til þín 

Ásdís Sigurðardóttir, 13.5.2009 kl. 22:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband