Þar kom að því
31.10.2009 | 19:06
Sporðdreki: Það er svo sem í lagi að treysta á sína nánustu tilfinningalega. Stundum er erfiðara að þiggja en gefa, en rétt er að leyfa öðrum að sýna örlæti.
Þar kom að því, dagurinn fer ekki alltaf eins og maður ætlar, í morgun vaknaði ég með yndislega svimann sem er búin að angra mig í nokkrar vikur, en hann hefur alltaf gengið yfir er hjartalyfin byrjuðu að virka á morgnanna, en í morgun fór það bara ekki svo, ætlaði að lognast út af trekk í trekk og sjáið þið ekki í anda elsku Gísla minn reyna að halda uppi þessum 113 kílóum sem ég er, hefði nú ekki boðið í það, enda bara á gólfinu lent, og það hefði verið í lagi, þeir hefðu bara hirt mig þar upp elsku strákarnir á sjúkrabílnum.
Ekki hafði ég matarlist, flökurt og afar ósátt við ástandið, og viti menn Milla litla varð að brjóta odd af oflæti sínu og hringja í dokksa, sem reyndist vera ungur og myndarlegur, eigi var það nú verra. sem sagt ég sá það er hann kom því ég ætlaði að komast uppeftir sjálf, en það gekk ekki eftir, sjúkrabíllinn á staðnum var á leið til Akureyrar með sjúkling, svo hann kom bara ungi dokksinn, hann taldi þetta ekki vera út frá hjartanu þar sem ég var bara rétt eins og ungabarn í þeim mælingum, en þetta gæti verið út frá sveltum skjaldkirtli, líkt mér að svelta hann, alveg óþarfi að gefa honum nægilega mikið af Levaxíni, jæja svo út frá mörgu öðru, en ég hallast að kirtlinum eða blóðþrýstingslyfinu, og ég veit þetta að sjálfsögðu
En hann vildi nú að strákarnir á sjúkrabílnum kæmu við og tækju línurit til að taka af allan vafa.
Sko það er ekki amalegt að fá heim að rúmi svona flotta stráka trekk í trekk, heyr heyr fyrir okkar yndislega fólki í heilbryggðis geiranum, það er sama hvort maður þarf að leita til þeirra hér á Húsavík eða á Akureyri, er fólkið í þessum geira yndislegt.
Nú ég fór svo bara að sofa, vaknaði um 14.30 fékk mér hálfa kringlu og Pepsí Max sofnaði aftur og svaf til 16.30 þá var ég komin með list, og fékk mér brauð staulaðist með hjálp inn í tölvu, en þar er svona stóll sem ekki er möguleiki að detta úr. Milla mín hringdi og var að vitja um mig, voða sár að því að ég gaf ekki skírslu um ástandið hún frétti út í bæ að sjúkrabíllinn hefði verið fyrir utan, nú ég lofaði að láta hana vita með þriggja daga fyrirvara, sko næst
Svo sagði hún að ég yrði að láta Dóru vita, humm, já gerði það.
Annars elskurnar mínar er ég að fara í alsherjar rannsók á mánudaginn, það var reyndar ákveðið í síðustu viku, þá kemur vonandi í ljós hvað er í gangi, kannski er ég bara svona óþekk.
Nú er Gísli minn búin að sjóða kartöflur og hita Ítalskar kjötbollur sem ég á í kistunni svo ég verð víst að vera dugleg að borða það.
Bara að koma því að, ég á afar erfitt með að þyggja,
gengur betur að gefa, en ég veit að mitt fólk meinar
allt það besta og ég elska þau fyrir það
Kærleik til ykkar allra
Milla
Athugasemdir
Æ æ ..Vonandi kemur nú allt gott út úr rannsókninni..Knús til ykkar Milla mín.
Sigurbjörg Eiríksdóttir, 31.10.2009 kl. 19:13
Gangi þér vel í þessu öllu Milla mín!
Jóhanna Magnúsdóttir, 31.10.2009 kl. 19:27
Þú ert nú algjör perla mín elskulega vinkona. Já ekkert vera að ónáða þessar elskur þarna nema að þú sért bara komin í gólfið eða þar um bil. Vonandi finnst eitthvað út úr því hvað veldur þessum svima hjá þér. Það er ekkert smá óþægilegt þegar allt snýst í hringi .
Knús og batakveðjur til þín.
Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 31.10.2009 kl. 20:16
Silla mín það gerir það örugglega, fer nú ekki að gefast upp á þeim , sko læknunum finnst ég er byrjuð hjá þeim.
Knús í Heiðarbæinn.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.10.2009 kl. 21:20
Takk Jóhanna mín, nú fæ ég víst ekki leifi til annars en að gera eins og mér er sagt.
Knús knúsljúfust mín.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.10.2009 kl. 21:21
Skó Jónína mín, mér finnst afar leiðinlegt að vera að ónáða þessar elskur, en nú er þetta komið í ferli svo mín verður bara að gegna., en ég hefði þurft að vera löngu farin til þeirra með þetta vandamál.
Kærleik til þín kæra vinkona
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.10.2009 kl. 21:23
Vonandi komar þeir að þvi hvað er að Milla mín. Gangi þér vel.
Anna Guðný , 1.11.2009 kl. 00:55
Takk elskan, er nú eiginlega farin að sakna þess að sjá þig ekki, er alltaf verið í skólanum?
Knús knús
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.11.2009 kl. 08:33
Ertu betri að hringsnúningnum í dag Milla mín?
Knús fyrir þig.
Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 1.11.2009 kl. 10:27
Já Jónína mín, en ekki góð, komst í sturtu með hjálp Gísla og gat blásið mig og sett á mig maskcara, allur munurinn eins og þú veist.
Knús knús
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.11.2009 kl. 11:45
Elsku Milla, vona að allt sé í þokkalegu standi hjá þér í dag, stundum verður maður að brjóta odd af oflæti sínu, skil þig svo. Hjartanskveðja og knús
Ásdís Sigurðardóttir, 1.11.2009 kl. 14:37
Takk Ásdís mín er betri í dag, fer í rannsókn í fyrramálið.
Knús knús
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.11.2009 kl. 15:25
kom við....geri það allt of sjaldan núorðið
Sigrún Jónsdóttir, 1.11.2009 kl. 18:04
Knús til þín Sigrún mín
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.11.2009 kl. 20:01
Gangi þér vel á morgun Milla mín.
Valdís Skúladóttir, 1.11.2009 kl. 23:11
Takk elsku vinkona
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.11.2009 kl. 05:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.