Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Vanvirðing á öllum sviðum.

Þó að þetta sé nú frétt síðan í gær þá ætla ég að úttala mig
um hana því mér eru svona mál umhugsunarefni.

Ég hef aðeins kynnst mönnum sem þarna dvöldu og eru þeir
bara yndislegir menn, en munu aldrei ná sér að fullu.

Af hverju í fjandanum er ekki sátt um bætur til manna sem
hafa orðið fyrir þeirri mestu lítilsvirðingu sem til er, það er
frelsissvipting á unga aldri, barsmíðar og kynferðislegt ofbeldi.
Fyrir utan það eins og einn sagði ég vill bara fá að læra,
drengirnir fengu ekki sömu aðstæður til lærdóms eins og önnur
börn og það var ekkert að þessum drengjum, þetta voru bara
heilbrygðir krakkar sem einhverjar barnaverndarnefndir út um
allt land ákváðu að best væri bara að losna við þetta lið.

Litli maðurinn í hvaða formi sem hann birtist okkur hefur ávalt
verið fyrir því lífi sem heitir að vera innan rammans og er það
hin mesta skömm sem til er.
Engin er æðri en annar, við erum öll jöfn og ef einhver á erfitt þá
ber okkur að hjálpa af kærleika, ekki samkvæmt rammanum
eins og svo margir gerðu og gera enn.

Svo eins og í þessu máli er bara allt sett í nefnd ofan á nefnd og
ekkert gengur, í staðin fyrir að setja nokkra menn í málið og
leysa það strax.
Það þýðir ekkert að segja að boltinn sé hjá Breiðavíkursamtökunum
það á bara ekki að hætta að tala saman fyrr en lausnin er komin.


mbl.is Engin sátt í Breiðavíkurmáli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir svefninn.

Jæja við gamla settið fórum til læknis í morgun, það heyrir
til undantekninga, erum aldrei hjá lækni, en merkilegt að
Gísli minn þarf að fara til Augnlæknis, þarf örugglega ný gleraugu
og svo þarf hann að fá sér heyrnatæki sem er ekkert tiltökumál
fyrir mann á þessum aldri, " kornungur".
Blóðprufu í fyrramálið er verið að fylgjast með nýrunum út af
meðali sem hann tekur. En svo á hann að fara í höfuðmynd
sem síðan öldrunarlæknir mun lesa úr, þetta kemur allt í ljós.

Nú ég byrjaði að romsa úr mér við þessa elsku, sko lækninn
allt sem mér finnst vera að og þar var nú efst á blaði að ég var
farin að pissa niður og það helst á nóttunni, sko ekki í rúmið
heldur er ég steig framúr til að fara á Wc,
en þó hefur það komið fyrir á daginn og er það ein af
aukaverkununum með þessu lyfi sem ég var látin á eftir jól,
það á að hjálpa taugaendunum sem fastir eru í þessum tveim
brjósklosum sem eru þarna til staðar og búin að vera í mörg ár,
núna allt í einu þurfti það að krækja sér í svona enda til að kvelja
mig, honum leist þannig á að nú verður
talað við bæklunarlæknir á Akureyri til að biðja hann að dæma um
hvort það sé eitthvað hægt að gera, áður hef ég fengið þau svör
að ég væri ekki efni í uppskurðarkandídat, en hver veit, tækninni
fleygir ávallt fram.
Nú ég fékk annað lyf sem er bara tilraun hvort ég þoli betur en hitt.
Það er nefnilega þannig að líkami minn hafnar ansi mörgum lyfjum
svo oft er staðið á gati.

Við fórum nú aðeins heim í kaffisopa er þetta var búið
Fórum síðan í apótekið, pósthúsið og svo í Kaskó, heim í hádegissnarl

Stóra ljósið kom í heimsókn að vanda og er það bara yndislegt.

Eitt ljóð eftir Gísla Stefánsson, Mikley
(1900-1953)

Hér ei brestur rauða rós,
runnar flestir anga.
En fyrir vestan og út við ós
er þó best til fanga.

Ástin mín var ung og smá,
aldrei festi rætur.
Vakti bara bros og þrá,
bauð svo góðrar nætur.


Góða nótt kæru vinir
HeartSleepingHeart


Ég þangað, þegar verður farið að leigja út.

Skrýtið en ég er búin að sitja hérna smástund og átta
mig á þessari frétt, það er ekki 1 apríl eða neitt.


Sumarhús Sigurðar Einarssonar að Veiðilæk er enn í byggingu.

Sumarhús Sigurðar Einarssonar að Veiðilæk er enn í byggingu.

200 miljónir gegn veði í sveitasetri

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, skuldar Vátryggingafélagi Íslands (VÍS) 200 milljónir króna gegn veði í hálfbyggðu sveitasetri sínu við Veiðilæk í Borgarfirði. Tryggingarbréf þar sem setrið er sett að veði fyrir skuldinni er útgefið 29. desember 2008, eða fyrir um þremur mánuðum.

Já hálfbygg er það ennþá en það á örugglega að húrra þessu
bara upp í kreppunni.
Staðsetningin er bara flott og ekki dónalegt að bjóða fólki upp
á svona lúxus, en ég spái því að einhver kaupi þetta og jörðina
með, til dæmis einhver sem í kolli sínum geymir gullið, klári
húsið og geri það að hóteli, þá ætla ég að leigja eina nótt ekki
mun ég hafa efni á fleiri nóttum.

Samkvæmt ársreikningi félags í eigu Sigurðar, Veiðilæks ehf., sem stofnað var utan um byggingu setursins, hafði Sigurður sjálfur lánað 218 milljónir króna til framkvæmdarinnar í árslok 2007.

Jæja hann hefur þá átt 218 miljónir til að setja í þetta sjálfur
eða mun svo koma í ljós að hann hafi fengið þær lánaðar
einhversstaðar,líklega hefur hann gert það ekki taka þeir neina
áhættu sjálfir blessaðir
.

VÍS er að fullu í eigu Exista, sem var stærsti eigandi Kaupþings fyrir bankahrunið í október. Hluthafar Exista skipta þúsundum.

Já nú fatta ég, hann hefur ætlar að bjóða hluthöfunum að gista
eina nótt þegar allt væri búið.

Morgunblaðið sendi Sigurði spurningar um veðsetninguna í tölvupósti í gær. Þar var hann meðal annars spurður hvort skuld hans við VÍS væri vegna lánveitinga til hans og hvort hann hefði endurgreitt sér þá upphæð sem hann hafði lánað Veiðilæk ehf. vegna byggingar sveitasetursins. Í svari Sigurðar segir að hann líti á persónulegar fjárreiður sínar sem einkamál og að hann sjái „ekki ástæðu til að fjalla um þær opinberlega. Bygging hússins að Veiðilæk og málefni einkahlutafélagsins sem stofnað var vegna þeirra framkvæmda er hluti af persónulegum fjárfestingum mínum og ég vil ekki svara spurningum þar að lútandi".

Auðvitað vill maðurinn ekki ræða sín einkaviðskipti, en hvað
með þá sem töpuðu og eiga eftir að tapa peningunum
sínum á þessu ógeðslega brölti öllu saman.
Hér sveltir hálf þjóðin getur ekki borgað af sínu, er tekið í
gjaldþrot eða gert árangurslaust fjárnám hjá og allt vegna
ástandsins sem aðrir hafa skapað.
Fari þeir bara til fjandans allir þeir sem urðu þess valdandi
að allt hrundi.

Fokheldur lúxus


Sigurður Einarsson keypti jörðina Veiðilæk vorið 2004, en hún stendur við Norðurá í Borgarfirði, eina frægustu laxveiðiá landsins. SPRON lánaði félagi í eigu Sigurðar á sama tíma 76 milljónir japanskra jena með veði í jörðinni. Framkvæmdir við byggingu setursins, sem er um 840 fermetrar, hófust árið 2007. Þar áttu meðal annars að vera fimm baðherbergi, stærðarinnar borðstofa, 50 fermetra vínkjallari, tvöfaldur bílskúr og tvö gufuböð sem áttu að vera byggð inn í bergið undir setrinu sjálfu. Setrið er í dag fokhelt og byggingu þess hefur verið hætt, að minnsta kosti tímabundið.

Sko eins og ég taldi hann fékk lánað til kaupa á jörðinni
og það hjá Spron 76 miljónir jena með veði í jörðinni.
En lesið bara stærðina og allt sem átti að vera í þessu
"Sveitasetri" er ekki í lagi með menn það kallast ekki "sveitasetur"
á Íslandi bara sumarhús eða veiðihús, Fjandans snobbarar eru
þetta. manni leið nú bara vel í gömlu veiðihúsunum við hvort sem
var Grímsá, Víðidalsá eða öðrum þeim ám sem maður kom í hér
áður og fyrr, en eins og allir vita þá eru komin ný veiðihús við
þessar ár.
Ég spyr hvernig er þetta hægt, ekki mundum við fá svona lán
þó jörð ættum, eða er það?
Vona að þessum mönnum öllum líði bara vel.

Okkur líður ekki vel.


mbl.is 200 milljóna veð í sveitasetri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir svefninn.

Þið vitið nú alveg hvernig 1 dagur mánaðarins er hjá okkur
nú það eru borgaðir reikningar og það gerðum við í morgun.
Fórum síðan í Bakaríið og ég byrgði mig upp af brauðum til
að hafa nóg yfir páskana, það vilja nefnilega ekki allir
brauðin hennar ömmu, að sjálfsögðu keypti ég handa okkur
heilhveitihorn og kjallarabollur fengum síðan kaffi er heim komum.

Síðan komu vinkonur mínar í dag og það var nú aldeilis gleði því
Sibba varð amma af sínu fyrsta barnabarni í morgun klukkan 8.
Hún kom með tertu og rjóma og fengum við okkur kaffi og tertu.
Ekki var nú mikið unnið í handavinnu.

100_8145.jpg

þarna er Sibba til hægri og Gunna mín hún ætlaði að punta sig
fyrir myndatökuna, en ég fattaði það ekki alltaf jafn tregTounge

100_8146.jpg
Hér fær hún smá sárabót.Wizard

100_8143.jpg


Aðalheiður og Gísli minn, hún á nefnilega líka Gísla bara ekki minn.

Stóra ljósið kom svo til okkar, fékk tertu og plataði út úr mér gosdrykk.
Bara æðislegur dagur.

                     *************************           

               Bágt er að kunna ekki móðurmálið til hlítar.

               Grasekkja?

Ung kona hallaði sér hlýlega upp að dansherra sínum og hvíslaði
lokkandi: ,,Veistu að ég er grasekkja?"
,,Hvað segirðu," ansaði dansherra. ,,En skemmtileg tilviljun.
Ég er nefnilega garðyrkjumaður."
En samkvæmt orðabókinni þýðir grasekkja; ,,gift kona,
sem maðurinn er í burtu frá stundarsakir.
"

Góða nótt kæru vinir HeartSleepingHeart


1 April.

Hvað skildi nú vera aprílgabbið í dag, það er hin stóra
spurning?

Kannski að þeir ætli að selja húsbúnað úr gömlu bönkunum
varla hver vill nú eiga þetta drasl, því ekki fær maður að
kaupa antikið.

Eða, að ökumenn þurfi að varast hálku, um það þurfum við
ekki að efast þannig er nú veðrið um allt land.

Eða, Um jeppann, ekki að spyrja að því er þeir taka völdin
í sínar hendur þá ræður engin við þá, sko jeppana.

Eða, nei það er ekki það því varla er hægt að grínast með eldinn.

Heldur ekki er ráðist er á fólk.

Eða, ekki er nú að efast um að lengi þurfi að vinna frameftir
á þingi, bara alveg til klukkan 24, greyin.

Gæti verið að George Burley hafi rekið Fergusson og MC Gregor
úr landsliðinu og að þeir verði þar af leiðandi ekki með gegn
Íslendingum í kvöld. Ég tippa á að það sé 1 aprílgabbið
En annars veit ég ekkert um það.


Annars langar mig til að segja ykkur eina frábæra frétt, við gamla
settið erum að fara til Flórída, hlakka svo til.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband