Bloggfærslur mánaðarins, september 2012

Hugleiðing 1V

Ein sit ég og sauma #"$%&&&&&/ nei nei ég meina hugsa það er svo gott að vera ein með sjálfum sér finna friðin með kisunum mínum sem kúra í ömmu bóli það er svo heitt og gott, nú vetrarverkin eru komin á fullt hjá öllum, skóli, ræktin, íþróttirnar og að sjálfsögðu föndrið hjá okkur mæðgum mikið finnst öllum gott er það kemst regla á alla hluti eftir sumarið þó allir séu líka fegnir er skóla líkur, en þá er það fótboltinn og bara allt mögulegt og auðvitað er þetta svo skemmtilegt að engin vill missa af neinu.

Hér á bæ er ósköp rólegt englarnir mínir farnar til Japans og gera það bara gott þarna úti í hinum stóra heimi sem þeim finnst ekkert stór, en ég hef  yndislegu barnabörnin mín fjögur hér á Kópa og við Dóra erum svo heppnar að fá að hafa þau á stundum og þá er fjör í bæ nú svo tala ég nú við ljósin mín á Húsavík, fæ fréttir af hvernig þeim gengur og svoleiðis, ég get allavega ekki kvartað.

Fyrirsagnir blaðanna fara stundum fyrir brjóstið á mér eins og þessi:
" Þóra Arnórsdóttir með börnin og manninn á frumsýningu"
Væri ekki skemmtilegra að segja:
"Þóra og Svavar með börnin á frumsýningu" Nei ég bara spyr.

Svo þessi sem ég heyri oft á einni sjónvarpsstöðinni:
" Vertu heima með elskunni þinni í kvöld hún á það skilið"
Sko auðvitað eigum við konur allt gott skilið en mér finnst þessi
auglýsing asnaleg, karlar eiga líka allt gott skilið.

249631_474313415933372_88930664_n.jpg


















Englarnir mínir með nýjum vinkonum

253072_3673680367880_895993788_n_1172726.jpg

Auðvitað var farið á MC Donalds

297727_3686718773832_1641197675_n.jpg

Fallegu englarnir mínir

402734_279045095529460_677938151_n.jpg

Flottar þessar vinkonur

488271_3675695298252_427632079_n.jpg

577008_3683792340673_217137937_n.jpg

Nammi namm

644073_514935328520719_762505976_n.jpg

Hópur af skólafélögum, það væri nú munur ef við gætum verið í
stuttbuxum en við búum víst á Íslandi

Kærleik og frið til ykkar allra


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband