Bloggfærslur mánaðarins, desember 2015

Hetjurnar okkar

Það má sko alveg tala um hetjurnar okkar og eru þær margar
Flugmenn á sjúkrafluttningavélum, Björgunarsveitirnar, lögreglan, læknar og hjúkrunarfólk og ekki má gleyma hinum almenna borgara sem veita oft fyrstu hjálp


 Nokkuð al­var­legt vinnu­slys átti sér stað á Blönduósi í dag þegar ung­ur maður festi fót­inn á sér í svo­kölluðum ull­ar­tæt­ara sem ríf­ur niður ull í verk­smiðju Ístex. Sam­starfs­mönn­um manns­ins tókst að losa hann en fót­ur­inn var illa út­leik­inn eft­ir slysið. „Það var óskað var eft­ir þyrlu Land­helg­is­gæsl­unn­ar til þess að flytja mann­inn en þeir gáfu það frá sér og gátu ekki sinnt því ein­hverra hluta vegna. Þá vildi svo heppi­lega til að sjúkra­flug­vél frá Mý­flugi var akkúrat að klára sjúkra­flug frá Ak­ur­eyri til Reykja­vík­ur og þeir gátu komið beint til okk­ar,“ seg­ir Hösk­uld­ur Erl­ings­son, varðstjóri lög­regl­unn­ar á Blönduósi. „Þess­ir menn eru al­gjör­ar hetj­ur,“ seg­ir Hösk­uld­ur um Mý­flugs­menn og kann þeim góðar þakk­ir en veður­skil­yrði voru alls ekki góð á Blönduósi í dag. Hann seg­ir að bæði Holta­vörðuheiði og Öxna­dals­heiði hafi verið ófær­ar í dag og því eng­in önn­ur úrræði sem stóðu til boða en flug­leiðin. Hösk­uld­ur seg­ir að á svona dög­um sýni það sig ber­sýni­lega hversu mikið hags­muna­mál það sé fyr­ir lands­byggðarfólk bæði að hafa flug­völl og að fært sé til Reykja­vík­ur en sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Mý­flugi var not­ast við neyðarbraut­ina svo­kölluðu bæði í sjúkra­flugi frá Ak­ur­eyri og frá Blönduósi en ill­fært var um aðrar braut­ir Reykja­vík­ur­flug­vall­ar.

Vonum að allt fari á besta veg fyrir slasaða manninum.

Förum varlega kæru vinir
Gleðilegt ár


mbl.is „Þessir menn eru algjörar hetjur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þú rúllar þessu upp Sigmar

Ég tel Sigmar vera góða fyrirmynd fyrir fólk í sömu stöðu og hann er, já og einnig aðra sem falla í freystni fyrir sínum markmiðum sem eru endalaus hjá okkur flestum.

Eigi  ætla ég að tala um afhverju við erum svona vond við okkur  sjálf, veit bara að við erum það.

Sigmar þú ert minn uppáhalds fjölmiðlamaður og við sem horfum á þig í imbanum eigum heilmikið í þér, ég er stollt af þér að koma svona fram og segja okkur þína sögu í þessum málum,
tu,tu í þína meðferð.
Mun hugsa til þín og þinna flotti strákur.


mbl.is Sigmar og Júlíana trúlofuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er heima?

Guðrún Hálfdánardóttir mbl.is

Hvað er heima? er spurn­ing sem fleiri tug­ir millj­óna jarðarbúa spyrja sig þessa dag­ana. Áætlað er að um 60 millj­ón­ir séu á ver­gangi.

Það þýðir að einn af hverj­um 122 íbú­um heims­ins hef­ur neyðst til þess að yf­ir­gefa heim­ili sitt. Um ein millj­ón flótta­manna hef­ur komið til Evr­ópu í ár en und­an­far­in ár hef­ur tala flótta­fólks í Evr­ópu hækkað hratt. Á hverju ári hafa millj­ón­ir þurft að flýja heim­ili sín vegna stríðsátaka eða annarra hörm­unga í heim­in­um en í Evr­ópu hef­ur staða flótta­fólks ekki verið jafn áþreif­an­leg síðan á tím­um seinni heimstyrj­ald­ar­inn­ar eða í sjö­tíu ár. Allt síðasta ár fjölgaði þeim sem lögðu líf sitt í hættu við að kom­ast til Evr­ópu yfir Miðjarðar­hafið en 3.700 flótta­menn höfnuðu í votri gröf á flótta sín­um til álf­unn­ar


Í ÁRARAÐIR HEF ÉG VONAÐ OG TRÚAÐ AÐ HEIMURINN MUNDI BATNA OG ÞJÓÐIR HEIMS MUNDU TAKA Á ÞEIRRI MANNVONSKU SEM RÍKIR, ÞAÐ ER NEFNILEGA HÆGT AÐ STOPPA VIÐBJÓÐINN.
Ef allar þjóðir mundu skilja að trúarbrögð eiga ekki að hafa neitt að segja í samskiptum fólks og þjóða.
Allir hafa rétt á að hafa sína trú.
Við verðum að bera virðingu fyrir hvert öðru.
Tökum fólki eins og það er án titliti til þjóðar, litar
og trúar.

 

Það eru ekki bara flóttamenn sem spurja
Hvar er heima, það er fátækt fólk í öllum löndum og þetta verður að breytast.

Á Íslandi erum við svo fá að þess gætist meira ef einhver er fátækur þá á ég ekki bara við lífeyrisþega það er fjöldinn allur af fólki sem á um sárt að binda og það get ég sagt ykkur að ég met þetta fólk miklu meira en þá sem hafa mikið á milli handanna.


mbl.is „Hvað er heima?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Langanir

Talað er um að líkaminn krefjist ekki kynlífs á hverjum degi og vegna þreytu eftir annasaman vinnudag langi manni mest til að fara að sofa en hér koma góð ráð sem ýta undir kynlífsvilja þinn.



Ef það eina sem þú hugs­ar um eft­ir átta tíma vinnu­dag, heim­il­is­skyld­ur og annað dag­legt vesen er svefn er það bara ekk­ert skrýtið. Lík­ami þinn krefst alls ekki dag­legs kyn­lífs en það eru nokkr­ir hlut­ir sem þú get­ur gert til að ýta und­ir „kyn­lífs­vilja“ þinn.
Eft­ir­far­andi listi er feng­inn frá Women's Health:
Birtist á Smartland Mörtu Maríu

1. Notaðu sturtu­haus­inn með frum­leg­um hætti. Ef þú átt ör­fá­ar auka­mín­út­ur í morg­unst­urt­unni skaltu nota þær til að leika við sjálfa þig. Því fleiri full­næg­ing­ar sem þú færð þeim mun meira lang­ar þig í kyn­líf.


2. SMS-for­leik­ur. Byggðu upp kyn­ferðis­lega spennu með því að senda mak­an­um sms-skila­boð þar sem þú lýs­ir fant­así­um þínum.


3. Þjálfaðu lík­amann. Þannig eyk­ur þú endorfín­fram­leiðslu og þrek al­mennt. Ef þið mætið bæði sveitt heim er ekki annað að gera en að fara sam­an í bað.


4. Farðu í kynþokka­full föt. Það kveik­ir í öll­um.

 

5. Vertu til staðar. Gleymdu deg­in­um, slökktu á öll­um skjám og hlut­um sem valda áreiti. Kveiktu á róm­an­tískri tónlist og vertu 100% til staðar fyr­ir mak­ann. Ef þið blandið þessu öllu sam­an eru heil­mikl­ar lík­ur á skot­heldu kvöldi þar sem hjón geta notið sam­veru­stunda mitt í öllu stressi hvers­dags­ins. Það er gam­an.



Humm nokkuð góð ráð.
Og fyrir fólk á öllum aldri.


mbl.is Fimm hlutir sem þú getur gert núna og kveikja í þér í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá pistill

Þetta ár er búið að vera fljótt að fara hjá í sumar sem var ætlaði ég norður  að leika mér smá en þá bilaði bíllinn minn og ég fór á sjúkrahús eins gott að bíllinn bilaði því annars hefði farið illa fyrir þeirri  gömlu kanski upp á miðri Holtavörðuheiði.
Nú sumarið var tekið í Reykjanesbæ enda besta veðrið hér sunnan heiða, illa gekk að fá varahluti og komst ég ekki á bílinn minn fyrr en í haust, (hef ekki stoppað síðan).
Lífið er náttúrlega aldrei eins og maður vill hafa það en ef maður tekur það besta úr því þá blessast þetta allt.

Ætla nú ekki að segja að ég sé sátt við allt sem gerst hefur en hvað þýðir að súta það.

Jólaundirbúningurinn og jólin eru búin að vera yndisleg þó það hafi vantað elskurnar mínar á Húsavík en amma fer nú örugglega til þeirra í vor.

cxawgj5wkaaeibg_1274738.jpg

 

Hér kemur ein mynd frá aðfangadagskvöldi allir yfir sig glaðir að vanda
þetta átti að vera grettumynd en það hlóu allir svo mikið nema amma gat grett sig smá.
Við vorum svo í hangikjöti á jóladag hjá Fúsa mínum og co
er heima í afslöppun í dag.

Englarnir mínir eru svo að fara út til Japans í lok janúar með 3ja ára vinnuvísa í farteskinu svo amma ætlar að fara að safna fyrir Japansferð ef læknirinn gefur grænt ljós, svolítið langt flug.

Kærleik til ykkar allra.
Munið að agnúast ekki.
munið brosið,
brosið sem alla gleður.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband