Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Fyrir svefninn.

                          Vel á vondan
Menntahroki.

Bóndasonur kom heim um vorið en hafði um þriggja ára
skeið hafði hann lagt stund á æðri fræði við
Kaupmannahafnarháskóla. Hann fann óneitanlega nokkuð
til sín þegar hann horfði yfir heimafólkið á bænum, foreldra
sína, systkini og vinnufólk, sem aldrei hafði komist í tæri við
menninguna.
Fyrsta daginn heima spígsporaði ungi maðurinn um hlaðvarpann
og túnbleðilinn. Sá hann þá hvar hrífa lá í grasinu og spurði til
hvers þetta frumstæða áhald væri notað.
Eitt augnablik gáði menntamaðurinn ekki að sér og steig á  tindana,
sem sneru upp, en við það reis hrífan upp á endann og barði
bóndasoninn í höfuðið sem sagði að bragði:
,, Æ helvítis hrífan."

Úr bókinni heimskupör og trúgirni.             
Jón Hjaltason.

        *********************************

Trúgirni var allavega ríkjandi hér um daginn er vor kom í loft
og maður fór bara út á peysunni.
Eigi varði það lengi og nú er maður innisnjóaður og ekki spáir
hann gæfulega, þó á að vera hiti, hávaða rok og einhver úrkoma.

Jæja það er nú samt plús við það að komast ekkert, við gamla
settið tókum ísskápinn í gegn og allt í kringum hann í dag.
innréttingin var þvegin og allt pússað, svona betur en venjulega
helgartiltekt, á morgun koma vinkonur mínar í heimsókn, það er
ef þær komast.
Svo klárum við gömlu að taka restina af húsinu á fimmtudag og
föstudag. það er nú meira hvað þessi róbót sparar tíma eins og ég
var nú á móti þessu apparati til að byrja með.

Á föstudaginn koma þær frá Laugum í Páskafrí og þá mun ríkja gleði
í bænum, ekki að það geri það ekki alltaf, en bara meira gaman þegar
við eru öll heima.

Eins og þið vitið er nú mikið talað um mat og fyrir hyggjuna í mér,
en það eru margir mánuðir síðan Dóra pantaði PáskalærinGrin
ég er búin að leggja inn stóra pöntun af kjöti í Viðbót sem er
besta kjötvinnsla norðan heiða, svo ekki mun vanta mat í bæ
þetta árið.

Góða nótt kæru vinir HeartSleepingHeart


Þú getur fengið bíl, en þá fæ ég mann.

Hvaða smábarnaskapur er þetta eiginlega í mönnum
og er ekki alvarlegt mál að kenna mönnum mútur?
Það er alveg á tæru að hafi ég ætlað að kjósa í ár
mundi ég aldrei kjósa Frjálslynda flokkinn.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf verið rosalega iðinn við það að leita að einhverjum í Frjálslynda flokknum sem hugsanlega væri hægt að teyma yfir, hvort sem að það er með mútum eða einhverju öðru," sagði Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins í Zetunni á mbl.is.

Leita að einhverjum í frjálslyndaflokknum til að teyma yfir
hvort sem það er með mútum eða einhverju öðru.
Hæga! eru þetta frambærileg ummæli, formanns flokksins.
Tel svo eigi vera og formanninum til vansa.

Guðjón Arnar nefndi brotthvarf Gunnars Örlygssonar og Jóns Magnússonar yfir í þingflokk Sjálfstæðisflokksins og vistaskipti Karenar Jónsdóttur í bæjarstjórn Akraness.

Vistaskipti Karenar voru af flestum landsmönnum viðurkend
nauðsynleg og ætla ég ekki að fara nánar út í það hér
.

„Það er einfaldlega þannig að það hefur verið mikið keppikefli hjá Sjálfstæðisflokknum, og ég skil það, að reyna að kippa fólki frá Frjálslynda flokknum yfir í Sjálfstæðisflokkinn. Ég er ekki að segja að Karen Jónsdóttur hafi verið mútað þegar hún ákvað að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn í bæjarstjórn Akraness eða neinum öðrum. En það hefur iðulega gerst. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt sig í líma við að ná fólki frá okkur yfir til sín," sagði Guðjón Arnar og bætti við að hann vissi að Jón Magnússon hefði tekið ákvörðun um vistaskiptin einn og sjálfur

Guðjón skilur vel veiðar Sjálfstæðisflokksins, yðkar hann
þetta þá sjálfur, að veiða menn yfir til þeirra.

Hann er ekki að segja að Karen hafi verið mútað er hún
gekk til liðs við sjálfstæðisflokkinn, jæja aðeins að bakka
.

Gunnar er nú ekki lengur á þingi, svo óþarft er að rifja það upp.

Svo vissi hann að Jón Magnússon hafi tekið ákvörðun um
vistaskiptin einn og sjálfur.

Ja hérna var hann að efast um að þetta fólk gæti hugsað
sjálfstædd?

En svona bara í alvöru þá er ég hætt að skilja er sumir menn tala,
það sem kemur út úr er með eindæmum hemskulega barnalegt.
Þannig eins og ég hef oft sagt áður, er hætt að skilja þetta,
en mátti til aðeins að koma þessu frá mér, missti nefnilega
andlitið er ég hlustaði á Z í gær.

 


mbl.is Ná fólki frá okkur með mútum eða öðru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir svefninn.

Þessi er tekinn út um eldhúsgluggann mjög skemmtilegt.
maður sér ekki út yfir skjálfandann og yfir í Kinnafjöllin.

100_8139.jpg
Þessi út um vaskahúsdyrnar, Gísli mokaði smá svo Neró gæti pissað.

100_8137.jpg

þessi út um stofugluggann skaflinn nær alveg upp í horninu.100_8140.jpg

100_8141_821372.jpg

Bíllinn er í fínum snjóbílskúr tekið út um útidyrnar og skaflinn
fyrir aftan er jafn hár bílnum svo við komumst ekki neitt.

3395371895_02d12ee049vitamaerin_by_milla_821374.jpg

Verð að setja þessa inn, tekin af Millu minni af Viktoríu Ósk
bakgrunnur þessi er mixaður áður en myndinni af henni er sett inn.

Eina góða við snjóinn er að hann einangrar svo að maður lækkar
í öllum ofnum.

Stökur

Sætum lags við ljós og yl
lífgum hagsins brautir.
Látum bragsins léttu spil
lina dagsins þrautir.

Silfrið bjart við heimi hlær,
hefir margt að bjóða,
en ekkert skartað auður fær
á við hjartað góða.

Bjarni Halldórsson, Uppsölum
( 1898-1987


Góða nótt kæru vinir
HeartSleepingHeart


Stundum er maður ?

Já svona eins og tómur og þarf að fara inn á við og leita
svara um það hvort maður hafi misst af einhverju, eða
kannski  bara ekki komið 2009 heldur 2000.

Bjarni Benediktsson, nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins, segir  nauðsynlegt  að auka tekjutengingar til að tryggja að það fjármagn, sem ríkið hefur úr að spila, fari þangað þar sem þörfin er brýnust.

Það er bara ekki í lagi að fara aftur í tíman. Að auka
tekjutengingu er persónuskerðing og það gróf.
Við sem þekkjum til vitum að fólk sem ekki hefur þau
laun sem ber að hafa samkvæmt útreikningum Hagstofunnar
var skert í launum þó makinn væri einnig á bótum og fólkið lifði
ekki af sínum launum.

Þetta kom fram í Zetunni á mbl.is í hádeginu þar sem Bjarni var gestur. Bjarni nefndi barnabætur í þessu sambandi og sagði að nú færu þær jafnt til þeirra, sem væru í brýnni þörf fyrir þær, og þeirra sem hefðu úr meiru að spila.

Hvað er kallað að hafa úr meiru að spila?

Þá sagði Bjarni að óumflýjanlegt væri að sameina og einfalda ríkisreksturinn á ákveðnum sviðum. Hann nefndi aðspurður Lýðheilsustöð og landlæknisembættið og  einnig Varnarmálastofnun, Landhelgisgæsluna og Neyðarlínuna.

Lesið hvað hann tiltekur, ekki talar hann neitt um sendiráð,
rekstur ráðuneyta eða bílaflota ríkisins.
Held að þeir ættu að hugsa sér nær, en það hafa þeir aldrei gert
svo lengi sem ég man eftir mér.

Landhelgisgæsluna og neyðarlínuna talar hann um að spara við
sem sagt drepum bara þá sem lenda í slysum og hrakningum
því það er frí hjá 112.

Ekki gat hann svarað  þessu með útrásarvíkingana og mér fannst
endilega ég heyra smá hroka, kannski það sé bara ímyndun.

Eitt skulu þeir vita að við erum vel vitiborin þjóð og segjum ekki
já við hverju sem er lengur.


 


mbl.is Þarf að auka tekjutengingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju fatlaðir iþróttamenn.

Thelma Björk 13 ára gat ekki leynt gleði sinni

Thelma Björk 13 ára gat ekki leynt gleði sinni mbl.is/Ómar

Ég fyllist sælu-gleði við að horfa á þessa mynd.
sjáið hvað hún er glöð?

// Innlent | Morgunblaðið | 30.3.2009 | 05:30

„Algjör breyting fyrir okkur"

Ný 450 m2 viðbygging við íþróttahús Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík í Hátúni 14 var tekin í notkun á laugardaginn var. Meðal viðstaddra við opnunina voru Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri og fluttu þau öll ávörp.

Það hefur ekki verið dónalegt að hlusta á ræðurnar, sér í
lagi ekki frá þessum frábæru konum, krafturinn í þeim
er bara frábær, jæja ætlaði nú ekki út fyrir rammann
þið fyrirgefið það.

„Þetta er algjör breyting fyrir okkur. Nú fáum við fullkomna aðstöðu til lyftinga- og þrekþjálfunar. Öll tæki eru sérhönnuð fyrir fatlaða og aðgangurinn þannig að fólk í hjólastól kemst í þau öll," sagði Þórður Ólafsson, framkvæmdastjóri ÍFR. Þá var búningsklefum fjölgað og önnur aðstaða bætt. ÍFR hefur látið hanna nýja félagsaðstöðu við íþróttahúsið og sagði Þórður stefnt að því að láta þann draum rætast á næstu árum.

Aftur til hamingju þetta er alveg frábært og eins og Þórður
segir, þá breytir þetta öllu fyrir æfingar hjá íþróttafólkinu, en
það er nú sama við hvaða aðstæður fólkið æfir, alltaf er jafn
mikil gleði ríkjandi hjá þeim.

Og einnig óska ég Þórði Ólafssyni til hamingju með þessa
æðislegu viðbót.


mbl.is „Algjör breyting fyrir okkur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir svefninn. ,,Lúserinn''

                        ,,Lúserinn."

Við öpum margt eftir kananum. Til dæmis er hugmyndin
um hinn fædda tapara (eða ,, lúser") ættuð að vestan.
Reynt er að klína á börn þegar í uppvextinum að þau séu
ekki fædd til annars en að vera fótþurkur snillinganna sem
bera gæða-genin utan á sér strax í vöggu.
Við skulum líta á nokkra einstaklinga sem dæmdir voru
(að minnsta kosti um nokkurn tíma) misheppnaðir af
samferðamönnum sínum--voru með öðrum orðum ,,Lúserar".

                      Albert Einstein (1879-1955

,,Það mun aldrei verða mikið úr þér, væni minn."
Skólastjóri barnaskólans, þar sem Albert Einstein
sótti barnafræðslu, við þennan ,,treggáfaða" nemanda
sem þá var tíu ára gamall.

                      Frans Liszt (1811- 1886)

,,Hann skrifar ljótustu músik okkar tíma."
  Gagnrýnandi um Frans Liszt 1843.

                      Johannes Brahms (1833-1897)

,,Ég fór yfir tónlist þessa hrapps sem kallar sig Brahms.
Þvílík hæfileikalaus mannherfa. Það angrar mig að
þessum sjálfbyrgislega meðal- ljóni skuli vera hampað
sem snillingi.
                           Hvers vegna?"
       Tchaikovsky í dagbók sinni 9 október 1886.

Þetta er tekið úr bókinni Heimskupör og trúgirni.
Jón Hjaltason.

Við höfum nú lesið og heyrt oft um ,,Lúsera" að
við ættum að fara að hafa trú á þeim.

Það eru komnar myndir frá hitting 28/3

Góða nótt kæru vinir
.HeartSleepingHeart


Til hamingju Þorgerður Katrín.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er hörkukona, en auðvitað
hefði ég viljað sjá hana sem formann, hún gaf bara ekki
kost á sér, trúlega eru ærnar ástæður til þess sem henni
einni kemur við.
En í þeirri stöðu sem var þá upp komin hefði ég viljað sjá
Kristján Þór sem formann það hafðist ekki og vona ég að
flokknum mínum sem ég hef alltaf kosið, vegni vel og gangi
vel að skanna sig út úr erfiðleikunum.
Það verður örugglega langt í að þeir vinni aftur traust
fólksins.

Þó ég ætli mér ekki að kjósa í annað skiptið á ævinni þá
vill ég fá gott fólk á þing og treysti ég konunum best, en
þó ekki öllum.


Taktu á því Þorgerður og gefðu ekkert eftir
.


mbl.is Þorgerður Katrín fékk 80,6%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver á Lífeyrissjóðina?

 

Staða lífeyrissjóða afhjúpuð

Raunávöxtun lífeyrissjóðakerfisins á síðasta ári var mun verri en fyrirliggjandi opinberar tölur gefa til kynna. Samkvæmt bráðabirgðatölum Fjármálaeftirlitsins var raunávöxtun almennra lífeyrissjóða neikvæð um 21,45%, en ef tekið er tillit til væntanlegra afskrifta er afkoman mun verri.

Þegar gert er ráð fyrir 90% afföllum af skuldabréfum bankanna, 75% afföllum af öðrum fyrirtækjaskuldabréfum og 70% afföllum af erlendum skuldabréfum er neikvæð raunávöxtun lífeyrissjóðanna í fyrra nær 33%. Lífeyrissjóðirnir hafa gengið mislangt í því að afskrifa skuldabréf, en mæti þeir ekki afskriftarþörfinni getur það haft alvarleg áhrif á stöðu viðkomandi sjóða.

Já hver á þessa sjóði, jú það erum við fólkið í landinu, en
þessir fjandans uppstrípluðu snopphanar, þið vitið þessir
með lituðu fjaðrirnar sem spássera um eins og þeir eigi
heiminn OG okkar sjóði skaffa sér laun að vild og ekki
munu þeir komast inn í ríki himnana svo mikið er víst.

Skemmtu sér með bankafólki

Fjármálafyrirtækin, með viðskiptabankana þrjá í broddi fylkingar, lögðu ríka áherslu á góð samskipti við stjórnir og stjórnendur lífeyrissjóðanna meðan á uppsveiflunni stóð. Var forsvarsmönnum sjóðanna því boðið í lúxusferðir, oftast undir þeim formerkjum að verið væri að kynna fjárfestingar og fjárfestingarkosti. Að fundahöldum loknum tók hins vegar við líf lystisemda og rándýrrar skemmtunar.

Ekki gátu þeir verið án þess að þiggja því orðnir vanir
lystisemdunum og sjálfsagt ef einhver hefði ekki þegið
þá í burtu með hann vegna forpokaháttar.

Var farið á knattspyrnuleiki erlendis, á Formúlu 1-keppnir auk golf- og skíðaferða og í siglingar ýmiss konar. Þá má nefna að flogið var með viðskiptavini eins bankans, fulltrúa lífeyrissjóða þar á meðal, í laxveiði til Rússlands. Flogið var í einkaþotu og þegar á leiðarenda var komið var þyrla notuð til að fljúga með menn milli veiðistaða.

Maður verður nú bara sorgmæddur við þennan lestur
á meðan fólkið fær ekki vísitöluútreiknuð laun til að lifa af
eru þessir vesælu uppskafningar að sleikja rassgatið á
toppum fjármála og bankamanna farandi með þeim í þessar
líka ferðirnar, sem hér að ofan standa.

Allt þetta fólk ætti að skammast sín, en því miður kann það ekki
svoleiðis háttvísi.
Háttvísi þeirra er að líta niður á þá sem minna hafa og við höfum
minna vegna þess að þeir eru að leika sér með okkar peninga

Þetta er mín skoðun og það er langt síðan að ég fékk nóg
Og nóg af hverju?
Jú helvítis lyginni, niðurlægingunni og snobbinu í þessum
mönnum, þeir þykjast aldrei hafa vitað neitt koma ævilega
af fjöllum
.


mbl.is Staða lífeyrissjóða afhjúpuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir svefninn.

Við erum búin að eiga æðislegan dag í dag, erum öll komin
Hingað heim, leiðinda veður á leiðinni, en hafðist elsku Gísli
minn fór ekkert á taugum þó ég væra að aka með honum í
hvívetna.
Byrjuðum á því að fá okkur kaffi og brauð í bakaríinu við Brúnna
síðan að heimsækja nýju fiskbúðina hjá Halla og Huld og varð
ég afar hrifin af fiskbarnum, keyptum okkur einn rétt til að hafa
í kvöldmatinn, það er þannig að þú velur þér fisk sem er settur
í álbakka síðan grænmetið sem þú vilt hafa með þar ofan á kemur
rækja, það er ef þú villt, svo klikkuð sósa og ostur ofan á
Þetta er bakað í ofni í 20 mínútur, BINGÓ,og borðað sko ég taldi
að ég væri að kaupa of mikið, en þetta Halli mátti vera meira.
Við höfðum ekkert með þessu, en örugglega gott að hafa
brún grjón með.
Fiskbúðin heitir Heimur Hafsins öllum sem búa á Akureyri og
Nágrenni er óhætt að fara að versla við þau Halla og Huld.
Eva dóttir Huld mun vera í búðinni í sumar.
Takk fyrir okkur elskurnar þetta var æði.

Nú þá var að vitja um djammarana þær voru rétt vaknaðar,
við settumst smá og spjölluðum, aðallega við hundana sem
voru þrír Tinna, Tiger og Neró.
Alltaf jafn gaman að koma til Ernu.

Síðan fórum við gamli á undan í Norðurport, þær komu seinna.
Ekki var nú dónalegt að koma þangað, Anna Guðný gekk með
okkur um allt við keyptum okkur kleinur, flatbrauð, reyktan
rauðmaga og svo á næsta bás keypti ég mér tvær bækur
aðra ljóðabók og hina með svona allskonar öfugmæla og
skemmti sögum.
Svo er hægt að kaupa sér kaffi og meira að segja að láta spá
fyrir sér, svo endilega kíkið í Norðurport.

Þá var það hittingurinn, hann heppnaðist að vanda mjög vel
Doddi og Veiga komu aðeins til að knúsa okkur, en Veiga er
alveg komin að því að eiga lítið barn, svo þau stoppuðu stutt.
Það komu líka Víðir, Halli, Huld og Eva, við Gísli, Dóra mín og
dætur hennar Sigrún Lea og  Guðrún Emilía,Erna mín elskuleg
Ásgerður, Sigga, Anna Guðný, Unnur. Ef ég gleymi einhverjum
þá verður einhver til að setja ofan í við mig.
Það var bara æðislega gaman hjá okkur, eins og alltaf.

Smá grín í lokin.

Gömul kerling um bónda í sveitinni.
,, Svo dró hann annað augað upp í punginn á sér."

Sama kerling sagði um annan sveitunga, sem henni
þótti sýna sér yfirlæti:
,, Hann þykist víst of stór upp í mig."

Þetta er um er fólk kann ekki vel það sem það er að segja
og er úr bók eftir Jón Hjaltason.


Góða nótt kæru vinir
HeartSleepingHeart


Takk fyrir Samhjálp.

Samhjálp er heimili sem á allar þakkir skilið og ætla ég
bara að vona að allir þeir sem geta gefið til þeirra geri það.
Engin nema sá sem hefur lent í því að eiga ekki fyrir mat
og svelta geta sett sig í spor þeirra.
Reynið samt og gefið til Samhjálpar.
Þar veit ég að ríkir gleði er matnum er úthluta.

                ***********************

Það sama má segja með Hjálpræðisherinn þeir eru með hjálp
fyrir þá sem eru á götunni.

              ************************

Nú ég var að lesa um Fjölsmiðjunnar í Kópavogi það er bara flott
að lesa um hana. Þar starfa um 70 krakkar sem eru að fóta sig
á ný í tilverunni.
Allir ættu að kynna sér þjónustu þeirra á www.fjölsmidjan.is
Vert að styðja við bakið á þeim, þú veist aldrei hver verður næstur.

Er farin til Akureyrar og mun kíkja inn í kvöld.
Guð veri með okkur öllum.
InLove


mbl.is Metaðsókn hjá Samhjálp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband