Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2016

Dagurinn í gær endaði bara vel.

Í gær átti ég tíma í gangráðaeftirlit kl. 9 nú ég og Dóra mín lögðum af stað frá Njarðvík 7.45 og er við komum inn á Lansa var ég orðin 20 mín. of sein ég var 40 mín frá Hafnafirði að Lansanum vegna umferðatafa það var bíll við bíl alla leið hef ekki vitað annað eins ég mundi nú ekki nenna þessu ef ég þyrfti að stunda vinnu í bænum, ég mundi fara fyrr af stað.
Nú það var ekki hægt fyrir mig að komast inn hjá aðalinnganginum vegna framkvæmda svo ég fór Eiríksgötumegin fór það í hjólastæða-stæði sem reyndar var búið að keila af en rendi mér þarna inn, Dóra mín náði í hjólastól og renndi mér inn nú þessar elskur í eftirlitinu tóku því bara vel að ég var svona sein rúlluðu mér inn og sat ég bara í stólnum á meðan þær tóku línuritin svo þurfti náttúrlega að prennta þetta út en það gekk svolítið seinnt því prentarinn er frekar oft í vondu skapi sökum elli, gekk fyrir rest að tala hann til svo þær fengu úr honum pappírana, kvaddi þessar elskur með virtum er ég var búin að fá nýjan tíma.
Fórum framm til að borga en viti menn það var ekki hægt því posinn var bilaður svo ég fæ rukkun í pósti eða heimabankann spurði ekki einu sinni um það sagði bara hvernig í ósköpunum getið þið unnið við svona aðstæður þær hlóu við og sögðust vera vanar.

Held að þeir sem vinna að því að reisa nýtt sjúkrahús ættu að drífa í því áður en við missum besta fólkið í heiminum frá okkur.

Nú svo drifum við okkur heim Dóra var að fara í ræktina og vinnu og Nonni bróðir minn og Sava voru að koma í heimsókn til mín við áttum yndislegan dag saman.

Endaði svo daginn með harðangurs-hitting á Kaffi Dus, fengum okkur grænmetisrétt og var hann æðislegur.


Nú eins og ég sagði þá endaði dagurinn í gær afar vel.
Kærleik í daginn ykkar allra


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband