Sá þetta út um eldhúsgluggann.


Svifið seglum þöndum á Skjálfanda

  Það var fallegt veðrið við Skjálfanda í morgun þegar fréttaritari Morgunblaðsins á Húsavík fór í siglingu á skonnortunni Hildi. Sunnanátt var og góður byr bæði stagvent og kúvent eins og sagt er á siglingamáli.Hildur náði allt að átta sjómílna hraða sem gerði siglinguna enn skemmtilegri og ekki skemmdu Kinnafjöllin stemninguna með sínum snævaþöktum tindum

Er búin að hafa þessa yndislegu sjón fyrir augunum  út um eldhúsgluggann minn í dag, bátarnir voru einnig fleiri og svo nálægt bý ég að næstum gat ég talið fólkið um borð, reyndar er ekkert nýtt í þessu hjá okkur hér á Húsavíkinni, höfum þessa dýrð hjá okkur allt árið.


mbl.is Svifið seglum þöndum á Skjálfanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdís Skúladóttir

Flott mynd

Enda  ertu á flottum stað á víkini

Valdís Skúladóttir, 26.9.2010 kl. 01:52

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já Vallý mín er sko á æðislegum stað.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.9.2010 kl. 08:52

3 identicon

Þetta er flott skúta og flott mynd en er komin svona mikill snjór í Kinnafjöllin?

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 26.9.2010 kl. 16:39

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já það er komin nokkur snjór og þessi fer ekki aftur fyrr en næsta vor

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.9.2010 kl. 20:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband