Prufufærsla

Er að vona að þessi færsla fari í gegn og allt sé komið í lag hjá mér, þó ég viti eiginlega ekki hvað var að, hef ekki getað bloggað eða kommentað X lengi, en er búin að kommenta á fullu í morgun.

Gleðilegt ár kæru vinir og hjartans þakkir fyrir öll liðnu árin.

Ég er búin að hafa það yndislegt yfir jól og áramót, var reyndar veik í kringum áramótin og gat ekki mætt í mat og partý hjá syni mínum og tengdadóttur á gamlárskvöld, var bara ein heima í mínu volæði það var kannski bara gott því dýrin okkar voru afar glöð með að hafa ömmu heima, Ume litla trillist úr hræðslu, jæja ég fékk samt mat sendan með Dóru minni og borðaði ég hann á nýársdag.

Núna eftir helgina fer allt í fastar skorður og er það vel, skrýtið að alltaf eru allir glaðir að komast í frí og jafn glaðir er allt fer á fullt aftur.

 Ætlaði að setja inn myndir, en nei þá þókst það ekki, þær koma bara síðar

Kærleik til ykkar allra


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þessi færsla fór í gegn með því að ég afritaði hana sendi hana til barnabarns míns og fór inn á mína síðu og setti þetta inn frá sinni tölvu, er ekki að skilja þessa vitleysu nema að netið sé svona slæmt.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.1.2012 kl. 20:05

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skil ekki hvað getur verið að tölvunni hjá þér Milla mín, vona að þetta komist í lag, ómögulegt að hafa þig ekki með færslu sem flesta daga  hér er allt rólegt og notalegt, ég segi eins og þú, alltaf svo gott þegar rútínan kemst aftur á, eins og jólin eru yndisleg. kær kveðja 

Ásdís Sigurðardóttir, 6.1.2012 kl. 11:11

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já merkilegt, en ég held að netið hér á Ásbrú sé svona lélegt, gat samt ritað status í morgun á facebook, sjáum hvað setur

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.1.2012 kl. 18:23

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta komst allavega í gegn Milla mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.1.2012 kl. 13:47

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk að láta mig vita Ásthildur mín

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.1.2012 kl. 16:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband