Hugleiðingar II

Einhver var að tala um súpu um daginn og þá datt mér í hug grænubaunasúpan sem mamma gerði svo oft á sunnudögum handa okkur en í þá daga er ég var að vaxa úr grasi var ætíð á sunnudögum súpa í forrétt síðan kjöt með öllu tilheyrandi og desert á eftir og ef ég/við borðuðum ekki súpuna fengum við ekki kjöt eða desert, en þessi grænubaunasúpa var búin til úr heimasoðnum grænum baunum bökuð upp með smjörkúlu og soðið notað af grænu baununum slatti af rjóma settur út í og böns af grænum baunum og mér fannst þetta vægast sagt frekar ógirnilegt, en lét mig hafa það svo ég fengi kjöt og desert, þarna var verið að troða í mann allt of miklum mat því svo fékk ég að drekka í kaffitímanum og það voru sko kræsingar síðan kvöldmatur.

Ég og Dóra fórum í bæinn í dag ókum niður Laugarveginn síðan niður Skólavörustíginn þurftum að fara í litir og föndur sem er þar sem Voge var það er aldeilis hægt að fá föndurefnið á þeim stað.

Ég settist á bekk fyrir framan hegningahúsið horfði upp og niður þessa yndislegu götu og vitið þið að hún hefur lítið breyst síðan ég man eftir henni fyrst, jú aðrar verslanir eru komnar í sum húsin, snyrt og lagað eins og gengur og gerist, elska þessa götu.

Það er annað, er ég kem akandi framhjá Hallgrímskirkju til hægri Njarðargötuna og niður Skólavörustíginn á þeim stutta spotta eru allt ný hús, búið að rífa Þórsgötu eitt þar sem langamma mín átti heima, er svo sem löngu búin að sjá það, en þurfti að rífa öll þessi gömlu hús kannski er ég bara svona gamaldags að ég vil bara halda í þetta allt, allavega þé elska ég þennan borgarhluta og alla leið vestur í bæ, en það er svo allt önnur ella.

Man núna eftir mat sem mér fannst rosa góður og var hann ætíð eldaður þegar hann kom í hús alveg nýr, en það var síld, kartöflur og rúgbrauð mikill veislumatur það, en held að ekki margir borði bara soðna síld í dag.
Svo ég tali nú ekki um grásleppuna vel signa, rauðmagan, krabba og humar en þetta keypti pabbi allt af trillukörlum sem réru út frá Ægissíðunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Gaman að lesa. Kveðja úr Heiðarbæ.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 21.7.2012 kl. 18:20

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Alltaf jafn flott Milla mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.7.2012 kl. 19:22

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk elskurnar

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.7.2012 kl. 19:27

4 Smámynd: Valdís Skúladóttir

Já það var alltof mikið af mat  í þá daga úff sem betur fer ekki í dag

    Já  alltaf  fjör að fara í konu ferðir..

               Kv                       

Valdís Skúladóttir, 22.7.2012 kl. 00:25

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já Vallý mín og takk fyrir mig, njótiði þess að vera á Akureyri

Knús knús

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 22.7.2012 kl. 10:43

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ummm mig langar nú bara í síld og rúgbrauð eins og í denn þegar ég les þetta. Kær kveðja og hafðu það sem best elsku Millan mín.

Ásdís Sigurðardóttir, 3.8.2012 kl. 14:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband