Til hamingju Ísfirðingar.

Þetta voru jákvæðar fréttir, það eru þá alla vega 20-30 störf,
sem fást þarna.
En betur má ef duga skal, og veit ég að þið
kraftmiklu vestfirðingar náið því fram.

                      Gangi ykkur allt í haginn.


mbl.is Starfsemi hafin á ný hjá Miðfelli á Ísafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur H Þorleifsson

Sæl Guðrún.

það er kraftur í þeim feðgum  Jóni og Badda. Ég lærði bifvélavirkjun hjá Jóni fyrir 15 árum og þá voru þeir feðgar að byrja í útgerð. Það voru ekki margir sem höfðu trú að því ævintýri þá. Jón rak bílaverkstæði var formaður björgunarsveitarinnar, slökkviliðsstjóri, bæjarfulltrúi og margt fleira. Útgerðin kom ofan á þetta allt. Hann Jón hefur gengið undir nafninu Jón almáttugur hér fyrir vestan og það segir margt um hann.

Kveðja að vestan.

Ingólfur

Ingólfur H Þorleifsson, 12.10.2007 kl. 16:35

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sæll Golli, ég kalla þig bara Golla, bróðir minn heitir Ingólfur og kallaður Golli.
þar sem ég bjó bara í 10. ár. á Ísafirði, kannast ég ekki svo gjörla við alla,
en eru þeir feðgar ekki Bolvíkingar? Maðurinn sem ég hef afnot af kannast
við nafnið Jón almáttugur, en ekki við son hans, en það er nú alveg sama
þú segir þetta dugnaðarmenn, þá trúi ég því
ég veit að þið spjarið ykkur eins og ævilega.
             Kveðja frá vestfirðingum á Húsavík.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.10.2007 kl. 16:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband