Halda að sér höndum.

Eihversstaðar verður fólk að búa.
Þeir sem mögulega geta, kaupa sér íbúð,
svo er það ávallt spurning, hvað á að gera?
90% lán er allt í lagi, það eru vextirnir og vaxtahækkanir
sem eru ekki í lagi.
Ég veit um margar fjölskyldur sem þurfa að selja
sínar eignir, sökum þess að þær ráða ekki við
allar hækkanir sem orðið hafa, ekki bara vaxtah.
heldur líka á öllu öðru.
Mér þætti gaman að vita hvar þetta fólk á að
fá bústað til að vera í? Mér þætti einnig
fróðlegt að vita, hvað á að gera til að hjálpa því fólki
sem mist hefur vinnuna sína, síðan húsin sín, síðan sjálfsálitið
og enda sem hreppsómagar. Og hvað þá?
mbl.is Forsætisráðherra: Skynsamlegt að halda að sér höndum og fresta fjárfestingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kári Harðarson

Ég hef ekki ennþá lesið um neinn sem hefur þurft að selja ofan af sér íbúðina út af vaxtahækkunum eða okurlánum.

Er það vegna þess að enginn hefur gert það, eða skammst fólk sín fyrir að segja frá því í fjölmiðlum?

Kári Harðarson, 12.11.2007 kl. 09:29

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sæll Kári, ég væri eigi að segja það ef ég vissi ekki um dæmi þar að lútandi. auðvitað hefur fólk sitt stolt,

en ég kenni eina konu sem er að selja vegna þessa.

Og er mér kunnugt um aðra.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.11.2007 kl. 09:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband