Menninga niðurrif, ekki óvön því.

Það eru kannski einhver hús sem meiga fara,
en í Guðanna bænum bjargið því sem bjargað verður.
Ég hef nú tjáð mig áður um þessi mál.
Að sjálfsögðu þarf að lagfæra mörg hús, en ekki
að fjarlæga þau.
Ef að breytinga-útrásin í borginni fær að ráða þá er voðin vís.
Eru ekki sömu stjórnvöld nú við völd sem eyðilögðu
Hringbrautina? Sú framkvæmd er að mínu mati,
hræðilega ljót svo ég tali nú ekki um göngubrýnnar.
Það á að halda gamla kjarnanum eins og hægt er,
byggja svo í samræði við hann. sumar teikningar sem maður sér
eru ömurlega úr stíl við allt sem tengist því.
Í von um að allt fari á besta veg.
Góðar stundir.
mbl.is Rætt um niðurrif í miðborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sammála þér með að margt var byggt af vanefnum,

en var samt frábær arkitektúr sem ber að verja.

Vandmeðfarið jú, en það eru bara peningaöflin sem ráða.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.12.2007 kl. 08:56

2 Smámynd: Ragnheiður

Það má laga helling, ég var alin upp við torfuna þegar hún var nánast ónýt. Lítið á þau hús í dag...glæsileg. Stórhallir og ljót háhýsi er ekki það sem vantar í yfirfulla miðborgina..

Ragnheiður , 19.12.2007 kl. 13:35

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Akkúrat það sem vantar, eða hitt þó heldur, Ragga mín

Það er satt hjá þér Hallgerður, við sofnum yfirleitt á verðinum. Ég veit ekki hvar þú ert fædd og uppalin, en við Ragga erum báðar fæddar í Reykjavik, við erum að ég held á sama máli um borgina okkar.

Ég man er ég var lítil stelpa, það var ætíð svo gaman, borgin svo aðlaðandi, og næstum allir þekktu alla, en ég veit að lífið staðnar ekki.

Það verða að vera framför, en að mínu mati, ekki þannig að þar rísi bara einhverjar glerhallir.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.12.2007 kl. 16:48

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mig langar nú ekki til að miðborgin breytist mikið, kann vel við hana eins og hún er, fyrir utan brunarústir.

Ásdís Sigurðardóttir, 19.12.2007 kl. 17:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.