Súpudagur!

Má til að segja ykkur frá deginum í gær. Það er nefnilega þannig að tengdamóðir Millu dóttur minnar,
hún Óda amma, hefur ætíð súpudag einn í desember, að þessu sinni var hann í gær.
Til hennar koma, ættingjar og vinir og stendur þetta allan daginn,  hún er með  kjötsúpu sem er alveg þykk af kjöti og grænmeti síðan er sveppasúpa heimalöguð einnig er heimabökuð  súpubrauð og kartöflur, smjör og kaffi á eftir. Þetta er alveg yndislegur siður, fólk kynnist betur, börnin eru svo glöð sama á hvaða aldri þau eru. Svo er langamma í hópnum hress og kát, það kalla ég nú forréttindi. Takk fyrir okkur elsku Óda okkar, þetta koma til með að verða ómetanlegar minningar
í hugum  barnabarnanna okkar er þau verða eldri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna

Sæl Milla og til hamingju með nýju tölvuna.Já það er svo sannarlega góður siður að koma svona saman ungir og aldnir allt of lítið gert að því í þessu hraða samfélagi okkar.bið að heilsa til þín Milla mín og gleðileg jól til ykkar allra.kv Erna

Erna, 23.12.2007 kl. 14:12

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þakka þér fyrir Erna mín.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 23.12.2007 kl. 18:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband