Harkalegt, eða hvað?

Ætli okkur finnist það ekki harkalegt,
að menn sem gefa sig út fyrir að vera hjálparstarfsmenn,
skuli vera dæmdir í nauðungarvinnu, en þeir voru að brjóta lög og mannréttindi.
Ég fagna því að þetta mál skyldi koma fram fyrir augu alþjóðasamfélagsins,
það vekur kannski alla til umhugsunar um eftirlits-leysi þjóða um hvað verður um ungviði,
unglinga og konur í heiminum, já hvað verður um þau?
Við höfum heyrt í fréttum hvað verður um sum þeirra.
Þau lenda í þrælkunn af ýmsum toga, kynferðislegu ofbeldi, endalaust er hægt
að telja upp, en eitt vitum við, þau sjást aldrei meir.
                    Mín skoðun.


mbl.is Dómur fallinn í Tsjad
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta er ótrúlegt mál, og sýnir eins og þú bendir á, að það þarf að hafa ýtrasta eftirlit með öllum.  Hjálpar eitthvað er ekki lengur neitt heilagt í hugum fólks, því miður. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.12.2007 kl. 12:29

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Fólk felur sig í mismunandi gærum og þykist vera að gera gott til að komast yfir peninga.  Ljótur leikur.

Ásdís Sigurðardóttir, 27.12.2007 kl. 13:18

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Rétt hjá ykkur stelpur, og þarft að vera með augu og huga opin
fyrir öllu og öllum.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.12.2007 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.