Höfundur
Tenglar
mbl.is
- Myndasíða Millu
- Pullip Myndasíða Sigrúnar og Guðrúnar
- http://123.is/641 Frábær síða gerð af bónda einum í Reykjadal.
- http://vf.is/ Suðurnesjablað
- http://245.is/ Sandgerðis fréttir
vinur
Fyrir svefninn.
4.1.2008 | 22:03
Í Tópaksleysi.
Á himininn skyldi ég höggva rauf
og henda þér upp á stallinn,
ef þú tækir tópakslauf
og træðir því upp í kallinn.
Stúlka segir unnusta sínum upp
og trúlofast öðrum.
þá var þessi vísa kveðin.
Ekki er sagan úti hálf
upp er sagt hún beiði
og svo undir annan kálf
aftur sjálf sig leiði.
Úlfur skytta.
Gengur þar með gæruskinn
gamli Úlfur skytta.
Þarna ætlar andskotinn
ömmu sína að hitta.
Jón Þorsteinsson.
Góða nótt.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.9.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 833021
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- Islenskur ungdómur í tískunni
- 65% ríkisstarfsmanna eru konur
- 2000 milljarða viðskiptatækifæri í hafinu við Ísland
- Flugferð í myndum
- Alma heilbrigðisráðherra sökuð um skilningsleysi.
- Leftistar reknir, öllum til gleði
- Þögn í nafni réttlætis
- Ríkisforsjárhyggja Ölmu Möller landlæknis í Covid
- Íslendingar í hermannaleik !
- Í fremstu víglínu frétta á sjónvarpinu 1986-1989 ... [ I & II ]
- Ofstæki í garð tiltekins atvinnurekstrar
- Þegar manni er mál.
- Orsök Úkraínustríðsins afhjúpuð
- Wók Silfur eins og alltaf núorðið
- Að það geti verið að hin ýmsu "FYLKI / ÞJÓÐARBROT" innan rússlands myndu vilja lýsa yfir sjálfstæði frá Moskvuvaldinu og hermanginu þar ? Ef að þau gerðu það, að þá myndi það sennilega draga úr allskyns "HERMANGS-SPENNU" hér á jörðu:
Eldri færslur
2023
2021
2020
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Af mbl.is
Viðskipti
- Utanlandsferðum fjölgar
- Olga Egonsdóttir nýr yfirmaður fjármála hjá Verne
- Andri og Svava til Daga
- Útgjöld áætluð 18,6 milljarðar
- Heilsuhraðall gangsettur
- Ný stofa á traustum grunni
- Nýr framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma
- Sviðsmyndir frumvarpsins
- Keypti hlutabréf fyrir milljarð dala
- Orkusalan kaupir söluhluta Fallorku
Athugasemdir
Blessuð aftur Guðrún, ég mun kannske prófa gestrisni Dóru er ég kem næst norður, mig langar alltaf til að kynnast fólki út af systkynum Árna langafa, en oftast er maður fer í sveitina fer maður bara í Húsabakka og stoppar oftast stuttan tíma, já fjallið okkar er fallegt og þegar ég var ungur heima í sveitinni fór ég oft upp á Núpinn við bæinn heima eða niður á landareignina þá sá maður Húsavíkurfjall og dáðist ég alltaf af því, þú býrð á Stórhól, ég flutti til Húsavíkur 2003 um haustið en var hálf eirðarlaus því vestfirðirnir toguðu svo fast í mig aftur að ég flutti vestur um vorið 2004, enda búin að vera hér síðan 1980, þá bjó ég í Stórhól 73 sem er raðhús og var ég ánægður með útsýnið eins og þú segir, jæja gaman að spjalla við þig, vonandi eigum við eftir að hittast og skilaðu kærri kveðju til Dóru, ég var í Laugaskóla 1977-1979 og voru það einhver bestu ár ævi minnar sem aldrei gleymast, yndislegur staður.
kveðja Halli
Hallgrímur Óli Helgason, 4.1.2008 kl. 23:04
En notalegt að lesa spjallið ykkar. Ég bjó í Túngötu 5 og svo Laugarholti 12, rétt ofan við sláturhúsið. Kær kveðja heim.
Ásdís Sigurðardóttir, 4.1.2008 kl. 23:44
Já Ásdís mín mér finnst það líka notalegt og gaman þegar fólk kemur
fram eins og Halli og lætur vita af sér. fjallið okkar já Ásdís ég segi alltaf við það að þú biðjir að heilsa, ég veit að það virkar.
Halli ég er ekki hissa á því að víkin hafi kallað á þig það er svo ægifagurt þarna fyrir vestan, og þar sem maður festir rætur og á sitt fólk vill
maður vera. þú tekur bara lengra frí næst svo að þið getið hist frændsystkinin. Kveðja vestur Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.1.2008 kl. 08:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.