Höfundur
Tenglar
mbl.is
- Myndasíða Millu
- Pullip Myndasíða Sigrúnar og Guðrúnar
- http://123.is/641 Frábær síða gerð af bónda einum í Reykjadal.
- http://vf.is/ Suðurnesjablað
- http://245.is/ Sandgerðis fréttir
vinur
Ósvífni.
11.1.2008 | 09:14
Maður hefur nú heyrt þetta áður og ég trúi þessu alveg.
Eru ekki komin nógu mörg steinháhýsi í miðbænum, hefði nú haldið það.
Öll strandlengjan frá Seðlabankahúsinu og inn í Laugarnes er byggð
upp í þessum stíl, geta þeir þá ekki haldið áfram að byggja þar?
Það er hneisa ef haldið verður áfram í þessum dúr.
Hættið að rífa niður gamla arfinn okkar sem eru þessi gömlu hús.
byggið þar sem er hægt að byggja og gerið upp gömlu húsin.
Skapið borg sem allir geta dáðst af, það er besti gróðinn.
Góðar stundir.
Flytja óreglufólk inn til að gera nágrönnum lífið leitt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.5.): 5
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 831886
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- Hera frábær, skömminn liggur annarsstaðar
- Arnar Þór Jónsson var í viðtali hjá Götustrákar
- Sprengju-kveikur í Kastljósinu
- Hérna koma koma NÝ SKILABOÐ frá ASTHAR COMMAND 7.Maí 2024:
- Skemmtiþátturinn umdeildi
- Þátttaka allra Norðurlanda í NATÓ breytir öllu fyrir löndin
- Einhverjir taki pokann sinn.
- Þjóðkirkjan og þjóðin
- Afmælisdrápa
- Undirgefnir eða vesælir Íslendingar?
- Líf Kirkju Krists er háð neyslu Brauðs Lífsins. Verður til fæða í Húsi Guðs?
- Rússland ætla að hætta stuðningi við uppreisnarmenn í Súdan -- fundir með aðilum í ríkisstjórn landsins, benda til að Rússar vilji styðja stjórnarher landsins í staðinn! Áhugavert að svíkja lit í borgarastríði með þessum hætti.
- Orkumál Íslendinga í öngstræti
- Limmó í Rússlandi
- Prúðbúnir herrar á MET Gala
Nýjustu albúmin
Eldri færslur
2023
2021
2020
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Athugasemdir
Hörður, takk fyrir að hrinda þessari umræðu af stað. Ég er íbúi í miðbænum og finnst ansi hart að okkur vegið hér í kjarnanum. Við megum þola ýmislegt á næturnar og um helgar, hús okkar útkrotuð og útmígin, en þrátt fyrir það allt þá er þessi þróun verktaka og afskiptaleysi borgarinnar ábyrg fyrir þeirri sjónmengun sem miðbærinn er orðinn. Hér hrörna byggingar og kofahjallar eins og ég veit ekki hvað og þegar loksins á að rífa þessa hörmung þá verður allt vitlaust.
Hvar er fólkið sem að er svo annt um húsin í Reykjavík á meðan þessu ferli standur? Afhverju æsir það sig ekki á meðan húsin eru að mygla niður í öreindir? Hér eru útkrotaðar og tómar byggingar út um allt, en enginn virðist bera ábyrgð á þeim. Hvernig væri að stöðva ferlið áður en það byrjar og láta eigendur fylgja einhverjum stöðlum um hvernig hús mega líta út?
Linda (IP-tala skráð) 11.1.2008 kl. 10:38
það er rétt hjá þér Linda, ömurlegt ástand,
það eiga að sjálfsögðu að fylgja því kvaðir hvernig húsin líta út.
það eru til dæmis settar kvaðir á ný hús og lóðir þeirra
eigendur fá svo og svo langan tíma til að klára útlitið.
Af hverju ekki alveg eins allstaðar og sér í lagi við eldri hús.
Ég tel að húseigendur af gömlum húsum í Reykjavík (miðbæ)
geri það viljandi að láta þau hrörna niður svo að þeir geti svo látið dæma þau ónýt, selt lóðirnar, og grætt mikla peninga.
Þó svo að Torfusamtökin og húsafriðunarnefnd ætli sér að gera eitthvað í málum gamalla húsa þá ef eigandi þráast við,
er lengi hægt að hártoga það hvenær þeir ætli sér að laga húsin
og ég veit ekki hvort það sé hægt að krefjast þess að menn geri það.
það þarf einnig mikla hugarfarsbreytingu í garð miðbæjarins.
Það þarf að vinna að henni á markvissan hátt.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.1.2008 kl. 12:01
Ásdís Sigurðardóttir, 11.1.2008 kl. 18:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.