Höfundur
Tenglar
mbl.is
- Myndasíða Millu
- Pullip Myndasíða Sigrúnar og Guðrúnar
- http://123.is/641 Frábær síða gerð af bónda einum í Reykjadal.
- http://vf.is/ Suðurnesjablað
- http://245.is/ Sandgerðis fréttir
vinur
Þessi flotta stelpa.
12.1.2008 | 08:57
Það var ætíð unun að horfa á þessa stelpu.
Bæði var hún frábær íþróttakona og flott í alla staði.
Hvernig stendur svo á því að hún fer svona með sig,
það mun ég aldrei skilja.
Vona ég að hún átti sig og lifi betra lífi er hún losnar
úr fangelsinu.
Góðar stundir.
Marion Jones dæmd í sex mánaða fangelsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 832540
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- -geisp-
- Hver er beinþynningar tölfræðin
- ESB, EES og fríverslunarsamningar
- Trúverðugleiki Bergþórs
- Meðvirknin nær út fyrir Miðflokkinn
- Í framhaldi af því gos-tímabili sem að nú er hafið; að þá er rétt að halda til haga nýjum gögnum um VATNSLEIÐSLUR sem að munu renna í átt að höfuðborgarsvæðinu:
- Boðsmótið hefst 27. nóv
- Á hið góða að koma með friði frá Bandaríkjunum heimsófriðar valdinum mesta ? !!
- Viðreisn kyndir undir innanlandsófriði
- lygasaga í dulargerfi.
- Sólveig Anna með kjarkinn.
- Er þetta virkilega að vera fáránlega fær?
- Óeðlilegar verkfallsaðgerðir
- Að velja sér viðmið
- Bæn dagsins...
Eldri færslur
2023
2021
2020
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Innskráning
Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.
Athugasemdir
Hún var ekki góð/frábær íþróttakona, henni vegnaði vel, en góðir íþróttamenn misnota ekki steralyf né annað. Ljótt að segja þetta en ég kalla þetta gott á hana og vonandi mun hún læra af heimskunni og sjá eftir henni.
Jóhanna (IP-tala skráð) 12.1.2008 kl. 10:26
Mér fannst hún æðisleg og eins og ég segi í mínu bloggi þá vona ég að hún átti sig og lifi betra lífi er hún kemur úr fangelsinu.
Það versta við þessa stera að fjöldin allur er að taka þennan fjanda
allt niður í unga stráka.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.1.2008 kl. 10:45
Auðvitað var hún, eða er góð og frábær íþróttakona. Hún virðist bara hafa þurft aðeins meira af sterum heldur en allir hinir topp íþróttamennirnir sem hún er að keppa við, þess vegna var hún gripin en ekki hinir.
svo er spurning hvort henni hafoi verið fórnað, það kemur fyrir líka.
Ævar (IP-tala skráð) 12.1.2008 kl. 12:12
Þetta er ótrúlegt kjaftæði og Jóhann, ég mæli með að þú farir á hæli. Er gott á þessa stelpu að vera dæmd í 6 mánaða fangelsi frá ungum börnum sínum!? Hvers konar djöfuls fábjáni ertu Jóhanna! Hvað hefur þessi stelpa gert einhverjum öðrum en sjálfri sér? Ekki nokkurn skapaðan hlut. Hafi rangt við í íþróttum. Rífum hana þá frá börnum sínum og hendum henni í fangelsi. Þetta er algjört rugl!
Aron (IP-tala skráð) 12.1.2008 kl. 20:46
Aron fólk eins og Jones er fyrirmynd þúsunda og jafnvel milljóna ómótaðra barna og unglinga út um allan heim. Svona lagað er mjög alvarlegt og getur leitt af sér óeðlilega hegðun annara og því haft slæmar afleiðingar fyrir aðra en hana sjálfa.
Aron, það að senda Jóhönnu á hæli leysir engan vanda að mínu skapi en ég held að þú ættir sjálfur að huga að eigin orðbragði sem er ekki til fyrirmyndar.
Að lokum vil ég varpa upp þeirri spurningu (til þín Aron) hvort glæpamenn eigi ekki að hljóta refsingu ef þeir eiga ung börn?
Steinn Hafliðason, 12.1.2008 kl. 21:37
Takk fyrir gott innlegg Steinn Hafliðason.
Sammála er ég þér í því að refsa beri glæpamönnum, þeir taka út sína refsingu og fá svo nýtt tækifæri í lífinu ef þeir vilja þiggja það.
Góða helgi Steinn.
Jóhanna, mín skoðun er sú að ég segi helst aldrei, að það sé gott á þennan eða hinn, mér finnst þá eins og ég sé að hlakka yfir óförum annarra. Það er ekki mitt að dæma, bara segja mína skoðun.
Góða helgi Jóhanna.
Aron biðja vil ég þig að viðhafa kurteisi gagnvart mér og þeim sem kommenta inn á mína síðu.
Góða helgi Aron
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.1.2008 kl. 22:13
Svona til að hafa staðreyndir á hreinu líka, þá var hún dæmd í þetta fangelsi vegna þess að hún laug og afvegleiddi alríkislögregluna. Hún var aldrei tekin eða féll á lyfjaprófi, hún viðurkenndi þetta aftur á móti sjálf eftir að þjálfarinn hennar tilkynnti lyfjanefndinni að hún hafði notað þetta og sendi sýni af þessum nýja steralyfi til þeirra, en þá laug hún fyrst að löggunni og bara það eitt að ljúga að alríkislögreglunni getur verið 6 ára fangelsi. Og eftir að hún játaði missti hún öll sín ólympíugull og sveit usa líka í boðhlaupi og viðurkennri að sjálfsögðu í leiðinni að hún hafði logið að löggunni áður. En hún féll aldrei á lyfjaprófi enda voru þetta sterar sem ekki fundust í lyfjaprófum á sínum tíma.
Og eitt í þessu og það er sorgleg staðreynd að allir þeir sem standa á verðlaunapalli á ólympíuleikum hafa notað árangurshvetjandi lyf að einhverju leiti, ef þeir falla ekki hafa þeir bara unnið sína heimavinnu vel........sad but true og það er miklu meira um þetta en nokkurn gurnar.
Snuddi, 13.1.2008 kl. 12:35
Takk fyrir gott innlegg Snuddi, getur þú kannski frætt mig um hvort einhverjir sterar komi fólki í vímu, ég er algjör rati í þessum steramálum
en vegna umræðu sem ég tók þátt í, langar mig að vita meira um þessi mál.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.1.2008 kl. 13:45
Snuddi, hefur þú þekkt unga meyju að nafni Völu Flosadóttur? Hefur þú nokkurn tímann talað við verðlaunahafa frá ÓL eða við einhvern frjálsíþróttamann yfir höfuð? Hefur þú einhvern tímann stigið á hlaupabraut? Vonandi er svarið við öllum þessum spurningum NEI. Það væri ekkert verra ef fólk sem ekkert til þessa heims þekkir gerði sér ekki að fífli með fullyrðingum á borð við
"allir þeir sem standa á verðlaunapalli á ólympíuleikum hafa notað árangurshvetjandi lyf"
en því miður er ekki við öðru að búast af almúganum.
Tomas (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 00:56
Tomas getur þú sagt mér eitthvað um það sem ég var að inna Snudda eftir? En Tomas það er einmitt almúginn sem er í íþróttum,
eða er það ekki?
Takk fyrir innlitið.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.1.2008 kl. 09:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.