Ótrúlegt en satt.

Maður hefur oft orðið undrandi á veðráttunni
síðastliðna mánuði, og spurt, hvað er eiginlega að gerast?
Hörkuvetur á suðvesturlandi trekk í trekk.
Þessu á maður ekki að venjast, hafa verið búandi á suðurnesjum
í 27. ár. man ekki eftir öðru eins.
Nú bý ég á Húsavík og ekki hefur verið hægt að kvarta undan
veðrinu það sem af er vetri. 7,9,13. búm,búm,búm.
Skyldu þeir ekki vera orðnir þreyttir hetjurnar okkar í björgunarsveitum landsins.
Sendi þeim orkukveðjur frá Húsavík. Farið öll vel með ykkur.
                               Góðar stundir.
mbl.is Skólahaldi frestað til hádegis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

SKrítin veðráttan, tek undir það með þér, hér er reyndar fínasta veður.  Snowball Fight 

Ásdís Sigurðardóttir, 14.1.2008 kl. 13:18

2 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Hér situr maður inni í kolsvörtum bil og allt á kafi í snjó..er nú ættuð af vestfjörðum og þetta minnir á vetrardaga þar ....

Kveðja Heiður. 

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 14.1.2008 kl. 14:28

3 identicon

Það er bara tippikal vetrarveður, s.s. ofankoma og skemmtilegheit. Annars takk fyrir hlý orð í garð dætra minna Guðrún Emelía.

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 15:04

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ásdís mín kæra það er sko líka gott veður í bænum þínum
HúsavíkMilla.

Ég bjó á Ísafirði í 9. ár þar kynntist ég líka ekta vetrarveðri,en samt
ekki því versta sem ég hef komist í kast við. Ég bjó í 27.ár í Sandgerði
og man aldrei eftir svona veðráttu eins og búið er að vera undanfarið.
Hvaðan ert þú að vestan Heiður mín?
                                Kveðja Milla.

Magga Ö. Ef ég væri ung og hraust eins og þú virkar vera, hefði ég ekki mikið á móti snjónum, enda er hann ekki neitt hjá okkur núna.
þegar ég var með elstu mína litla, var svo mikill snjór þar sem ég bjó að maður spennti á sig skíðin heima hjá sér renndi sér niður í kaupfélag,
og svo þurfti maður að ganga niður snjótröppur inn í búðina, hún var á kafi í snjó, það kalla ég snjó.          

                            Kær kveðja Milla.
 

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.1.2008 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband