Halda ró sinni.

Mikilvægt að allir haldi ró sinni, Ja hérna getur maður annað?
á meðan óróinn er að ganga yfir, Geir sagði einhversstaðar að
þetta væri ekki svo alvarlegt, þá skulu þeir líka koma því þannig fyrir
að fólk geti lifað og hafi einhvern vinnumarkað.
Satt að segja er maður orðin svolítið þreyttur á að hlusta á þessa
ráðamenn okkar, lofandi öllu fögru fyrir kosningar,
staðið við sama og ekki neitt, allt er að fara í kalda kol,
og svo er okkur sagt að halda ró okkar.
            Vona að þið sofið velSleeping


mbl.is Mikilvægt að halda ró sinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ég held ró minni en ég held að þeir eigi mun meira bágt en ég...ég er þó ekki með hlutabrégalán eða einhverja vitleysu sem er erfitt að eiga við núna

Ragnheiður , 17.1.2008 kl. 12:55

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ekki ég heldur Ragga mín, en ég get bara orðið svo reið,
allir eiga að halda ró sinni það er talað yfir manni eins og það sé að koma versti fellibylur ever. Kannski er hann að koma.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.1.2008 kl. 13:55

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það er auðvelt að segja okkur að halda ró okkar, margur á allt sitt undir hvernig krónan stendur sig og hvernig atvinnuástandið er í landinu, og við eigum svo bara að vera róleg.  Maður verður nú að halda vöku sinni, ekki bara fljóta áfram sofandi að feigðarósi.  Takk fyrir góða kveðju elsku Milla, ég veit þú skilur mig svo vel. Knús.

Ásdís Sigurðardóttir, 17.1.2008 kl. 15:46

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ég veit alveg hvað þú ert að ganga í gegn um.

Það eiga allir allt undir því  hvernig krónan og allt stendur sig,
það er eins gott að þeir standi við það að þetta sé ekki svo slæmt.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.1.2008 kl. 16:19

5 identicon

Veistu, þjóðfélagið má alveg við smá atvinnuleysi þó ég sé ekki hlynnt því að fólk sé að fara á hausinn. En sem betur fer hefur maður verið það skynsamur að kaupa ekki hlutabréf af lánsfé.

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 17.1.2008 kl. 17:32

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já ég veit ekki hvað með þá sem ekkert eiga,
allt er þetta keðjuverkandi og ef allt hækkar þá lifa sumir ekki
af laununum sínum, en við getum kannski startað kommúnu.
                                Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.1.2008 kl. 19:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.