Lengi vitað.

Það hefur nú verið lengi vitað að Björn Ingi Hrafnsson,
væri að íhuga breytingu, hefur algjörlega legið í loftinu.
Hélt satt að segja, í síðustu kosningum,
að hann mundi ganga í raðir sjálfstæðismanna,
en varla héðan af, eða hvað?
Nú telja menn að Ingibjörg Sólrún sé að fá nýjan hirðmann,
en hann gerist nú ekki svo glatt hirðmaður, þótt hann sé hálfgerð
undirlægju-persóna, ætíð hefur það nú verið talið að þær nái aldrei langt.
Einnig hefur rétti talandinn allt að segja,
talandi sem segir: ,,Allir eru vondir við mig, og allir segja að allt sé mér að kenna",
hefur aldrei höfðað til mín, enda er ég að viðra mína skoðun.
Björn Ingi er örugglega afar góður strákur, en hann á fjandi marga trefla.
                                                Góðar stundir.


mbl.is Björn Ingi úr Framsóknarflokki?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ég hef óljósan grun um að maðurinn fari áður en við verður litið í raðir samfylkingar.

Var annars að skrifa um þetta mín megin, við virðumst vera með afar svipaðar pælingar á morgnanna

Ragnheiður , 20.1.2008 kl. 09:14

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Hann fer , það er nokkuð ljóst og hvernig verður þetta þá í borgarstjórn??? Vill ekki skilja þetta rugl, það er bara hægt að skipta um flokk eins og nærur. það er eins og þeim sé alveg sama bara ef þeir fá að vera í pólitík, jæja já ekki ráðum við neitt við það.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.1.2008 kl. 09:26

3 identicon

Hann er að undirbúa jarðveginn með viðtalinu í fréttum í gær.

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 20.1.2008 kl. 11:28

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Uss, hann er löngu byrjaður að undirbúa skipti.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.1.2008 kl. 11:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband