Er ekki hægt að bíða af sér veðrið.

Nei það virðist ekki vera hægt að bara bíða af sér veðrið.
Það gerist nú ekkert stórvægilegt þó flutningabílar og
rútur fari ekki eina og eina ferð yfir veturinn.
Þú kemur hvort sem er ekki í vinnuna ef þú slasast,
svo af hverju ekki bara að vera heima þegar veðrið er
orðið fárveður.
Nei það er ekki hægt því það kemur ekkert fyrir mig.
                              Góðar stundir.


mbl.is Rúta fauk á fólksbíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Mikið er ég sammála þér! Alveg ótrúlegt stress í mannskapnum

Kjartan Pálmarsson, 22.1.2008 kl. 09:24

2 identicon

Já, það er búið að MARG vara fólk við að vera á ferð í þessu, en það er eins og að tala við vegg að koma upplýsingum yfir á suma.

Linda (IP-tala skráð) 22.1.2008 kl. 09:42

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já það er ótrúlegt að fólk trúir ekki neinu og lærir aldrei.
Verst er með alla þá sem þurfa að stofna sér í hættu til að bjarga þessum vitleysingum. Það getur ekkert verið svo nauðsynlegt
að það þurfi að hætta jafnvel lífi sínu og annarra fyrir það.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 22.1.2008 kl. 10:03

4 identicon

thad vill nu svo til ad pabbi minn var ad keyra bilinn!! hann er litid slasadur en samt enntha a slyso! OG HANN ER EKII VITLEYSINGUR!!! hann er vanur ad keyra i svona vedri!

Gudny Helga Haraldsdottir (IP-tala skráð) 22.1.2008 kl. 10:40

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Mín kæra Guðný Helga Gott að pabbi þinn slasaðist ekki mikið, en hvaða bíl var hann að aka?
Þú átt nú ekki að taka þessu svona persónulega, skal segja þér eina sögu: Dætur mínar fóru til Akureyrar á föstudaginn var vitandi vits það að veðrið væri að versna, en héldu að það kæmi ekki svona snemma.
Dóttir mín sem er alvanur vetrarbílstjóri var bara skíthrædd og hinar líka á heimleið. Stuttu seinna var Víkurskarðið orðið ófært og ekið var alla leið heim í skafrenningi og roki.
Ég kallaði þær vitleysingja þetta var alveg óþarfi.
Enn auðvitað eru þær ekki vitleysingar, en maður tekur svona til orða.
                        Góðar kveðjur til þín og þinna.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 22.1.2008 kl. 12:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.