Fyrir svefninn.

Hreppstjórar og hreppsnefndir
reyndu  áður eftir megni að koma ómögum af sér.
Hjón nokkur gömul og ellimóð bjuggu á koti í Reykjadal
í suður þingeyjarsýslu, en Reykdælingar töldu þau eiga
sveitafestu í Bárðardal.
Þeir komu sér því saman um að hlynna á engan hátt að þeim
til að losna við þau.
Einu sinni dó eldur hjá hjónunum. Kerling fór því á næsta bæ til
eldsóknar, lét nágrannakona hennar hana hafa eldinn.
Þetta var um morgun, og húsbóndinn ekki kominn á fætur.
Kona hans sagði honum frá komu kerlingar.
,, Og léstu hana fá eldinn?" Spurði bóndi byrstur.
,,Já", svaraði kona hans. ,, Heldurðu að ég sé verri
en andskotinn? Engum meinar hann eldinn".


                          Góð framleiðsla.

                                 Þessi landi er þrísoðinn
                                 af þeim sem verkið kunni,
                                 og sýnist vera samboðinn
                                 sveitamenningunni.

                                                Góða nótt.Sleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þú ert best 

Ásdís Sigurðardóttir, 24.1.2008 kl. 21:50

2 identicon

Góð saga, nattínatt

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 21:52

3 Smámynd: Ragnheiður

Æj framkoman við ómagana á árum áður var alveg skelfileg

Ragnheiður , 25.1.2008 kl. 00:37

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk snúllur. Ragga það er hörmung að lesa um það
hvernig var farið með þá sem voru kallaðir þurfalingar.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.1.2008 kl. 21:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband