Höfundur
Tenglar
mbl.is
- Myndasíða Millu
- Pullip Myndasíða Sigrúnar og Guðrúnar
- http://123.is/641 Frábær síða gerð af bónda einum í Reykjadal.
- http://vf.is/ Suðurnesjablað
- http://245.is/ Sandgerðis fréttir
vinur
Fyrir svefninn.
25.1.2008 | 21:23
Guðrún á Hæli giftist ekki og átti ekki börn.
Guðmundur Þormóðsson í Ásum var stríðinn maður,
einkum við öl.
Hann var kvennamaður talinn.
Einu sinni segir hann við Guðrúnu:
,, Ekki fjölgar þú mannkyninu mikið ennþá".
,,Það er nú ekki útséð um það, meðan þú ert á lífi",
svaraði Guðrún.
Guðrún Pálsdóttir (Skálda) kvað:
Ýmsum blöskra ólætin,
þá elta kýrnar bola,
en Stakkagerðis stóðmerin
stertrakaðan fola.
Mannlýsing.
Eftir því, sem ég hef vit,
en athugað í flýti,
hefur hann vöxt og háralit
húsbóndans í Víti.
Góða nótt.
Flokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:48 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- Knockin' On Heaven's Door
- Fyrstu 20 dagar nóvembermánaðar 2024
- Sósíalistaflokkur Íslands - tilraun númer tvö!
- Viðreisnarhjartað tifar
- Hver ER; LJÓSBERI jarðarbúana þegar að það kemur að heimsóknum gesta frá öðrum stjörnukerfum?
- Hægt með krónunni?
- Er Kína í stríði við Evrópu??
- Karlmannatíska : RALPH LAUREN Polo Holiday 2024
- Hérna kemur NÝJASTA TÆKNITEIKNINGIN af HINU NÝJA GOSI sem að er nú NÝ HAFIÐ: 20.NÓVEMBER 2024:
- Úr munni hestsins
- Erfiðið út í buskann
- "ÚLFUR Í SAUÐAGÆRU"??????
- Það gýs á tveimur stöðum af ólíkum ástæðum
- Flokkur fólksins
- Að tapa sigrinum
Athugasemdir
hehehehhe, góð
Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 25.1.2008 kl. 21:37
Þeir klikka ekki þessir fyrir nóttina. Það er ekki sama framhjáhald og að barna, eða hvað??
Ásdís Sigurðardóttir, 25.1.2008 kl. 23:02
Er ekki lífið dásamlegt .
Takk fyrir mig og góða nótt
Eva Benjamínsdóttir, 26.1.2008 kl. 00:40
Gott að sambandið er komið í lag. Ætlaði að fara að pirrrrrast rosalega vissi eiginlega ekki út í hvern. Komst inn á allt nema Moggann. Held þeir verði að fara að skoða sinn gang. Góða helgi Milla mín alltaf gott að fá einn svona hressan fyrir svefninn.
Ía Jóhannsdóttir, 26.1.2008 kl. 00:49
Hallgerður það er svo merkilegt, maður er að taka skemmtilestur upp úr
eldgömlum aðal bókum, og viti menn það eru bara nokkrir sem hafa getað kennt sig við persónur sem nefndar eru.
Góð heimspeki hjá þeirri gömlu.
Hefur þú nokkra vitneskju um hvort þetta erfist?
Nei bara spurði
Kveðja Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.1.2008 kl. 08:56
Ásdís, hér áður og fyrr var þörf á að breiða yfir hlutina,
þá var svo gott að fara inn í glerhúsið,
ég held að við höfum allar verið í þessari stöðu einhvertímann.
Kveðjur Milla.
Hæ Magga Ö. hafðu góðan dag.
Kveðjur Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.1.2008 kl. 09:02
Ía blessuð, já varst þú ekki pirruð í gær? Ég fór nú bara og lagði mig.
takk fyrir mig og góða helgi til þín og þinna.
Kveðja Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.1.2008 kl. 09:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.