Hjálp fyrir þá sem lenda í kynferðislegu og líkamlegu ofbeldi.

Það eru fjöldin allur af konum og mönnum sem
eru föst í samböndum sem eru stórhættuleg fyrir
viðkomandi manneskju.
Þau annað hvort eru orðin samdauna ástandinu, hrædd
við að koma sér út úr þeim af ýmsum ástæðum
sem þau ekki gera sér grein fyrir,
ég ætla ekki að telja upp ástæðurnar nú, þær eru of margar til þess.
Það sem ég ætla að segja er hvort ekki sé hægt að setja á stað herferð
í því að kinna fólki, að það sé í lagi að biðja um hjálp,
þau lifi við óeðlilegt ástand, hvar eigi að biðja um hjálpina,
og hvað þau eigi að gera til að fara ekki í sama farið aftur.
Það á ekki að trúa makanum um bót og betrun,
þeir meina það aldrei.
Það er lífshættulegt að búa við svona ofbeldi.
Allir standi við bakið á þeim sem koma fram og vilji breyta sínu lífi.
Þið skuluð athuga það, að næstum allir lenda í
ofbeldi af einhverju leiti, en sumir bara vita það ekki
fyrr heldur en eitthvað verður til kveikja á því að
þetta lífsmunstur er ekki í lagi.
                              Góðar stundir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

Að sjálfsögðu þarf að tala um þessi mál en því miður er það partur af ofbeldinu niðurlægingin að verða fyrir þessu og hræðslan við að tala um þetta út á við, svo oft eru málin komin í algjör óefni áður en hjálpin berst, því miður

Huld S. Ringsted, 1.2.2008 kl. 11:57

2 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Það er einmitt skólabókardæmi að konur sem verða fyrir heimilisofbeldi eru ráðalausar og þurfa hjálp til að komast sem lengst í burtu í skjól eftir Kvennaathvarfið, Aflið eða Sólstafi, svo þær fari ekki aftur heim eða í sama farið tilneyddar. En þó er fyrsta skrefið að komast frá ofbeldinu strax, því það endurtekur sig þrátt fyrir lof um bót og betrun níðingsins.

Eva Benjamínsdóttir, 1.2.2008 kl. 13:00

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Karlmenn verða líka fyrir ofbeldi og þá oftar andlegu, fer rosalega illa með menn og dvelur í þeim allt þeirra líf.  Eigðu góða helgi elsku Milla mín. 

Ásdís Sigurðardóttir, 1.2.2008 kl. 13:04

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ég veit að niðurlægingin er mikil hjá þessu fólki en ef það kemst að því að þetta er ekki eðlilegt ástand, þá kannski frekar koma þau fram
og segja frá, þau komast líka að því að þau eru ekki ein um þetta.

Það þarf að nota tækifærin sem koma t.d. í sambandi við fréttir af
svona málum, því fólk les þær.

                           Kveðja Milla.
 

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.2.2008 kl. 13:58

5 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Hrikalegt hvað sumir þola og halda að þetta gangi bara yfir!!
Knús á þig

Róslín A. Valdemarsdóttir, 1.2.2008 kl. 15:29

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já Róslín sumir láta ljóta hluti ganga yfir sig, en vonandi þarft þú aldrei að upplifa það.
                                     Knús á þigMilla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.2.2008 kl. 16:08

7 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Góð mynd af Róslín, falleg stúlka og guð gefi að hún lendi aldrei í neinu andsk. ofbeldi.

Góða helgi allar góðar stelpur knús á þig Milla frænka

Eva Benjamínsdóttir, 1.2.2008 kl. 17:07

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Hún lætur ekki bjóða sér neitt slíkt.
Góða helgi sjálf Eva frænka Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.2.2008 kl. 17:40

9 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk fyrir, allstaðar er maður nú að fá hrós
Ég hef nú ekki upplifað það hingað til, á líka besta kærasta í heimi, vissuð þið af því ?

Róslín A. Valdemarsdóttir, 1.2.2008 kl. 17:52

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Maður er nú búin að kíkja á myndirnar, þið eruð rosa sæt saman.
                          Knús á þig

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.2.2008 kl. 19:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband