Ekki líður manni vel.

Þetta er hræðilegt veður og farið þið bara varlega
þarna fyrir vestan, munið engum liggur á í svona veðri.
Það virðist ekkert lát á veðurhamnum,
aftur og aftur dynur hann á, sér í lagi á suður, vestur og
norðvesturlandi.
Guð veri með okkur öllum.

mbl.is Þrjú snjóflóð í Súðavíkurhlíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ísdrottningin

Óþjóðalýður þá eða?  Mér líður alltaf vel í vetrarveðri.

Ísdrottningin, 7.2.2008 kl. 13:21

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ísdrottning flott nafn, en óþjóðalýður þá eða? hvað meinar þú með því?
Fór aðeins inn á síðuna þína,að sjálfsögðu er það rétt að
Hamarsgöng eru í gegnum Arneshamar í Arnarneshlíð.
0G ég er af Arnardalsætt.
Líður ekki vel í óveðri alltaf hrædd um að eitthvað komi fyrir.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 7.2.2008 kl. 14:55

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ömurlegt þetta veður, hér er allt út í svelli og þvílíkur vindur, ótrúlega vont að fljúga svona á hausinn, mæli alls ekki með því...
Knús á þig Milla

Róslín A. Valdemarsdóttir, 7.2.2008 kl. 15:09

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Æj Æj dastu á hausinn það hefur ekki verið gott,
Hér er búið að moka allt eins og hægt er því hann spáir rigningu,
það verður geðsleg, ég fer allavega ekki út úr húsi nema ég þurfi.
Þó það sé blanka logn og sól í heiði.
                              Knús og bágt á sárin
                                        Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 7.2.2008 kl. 15:40

5 Smámynd: Ísdrottningin

Ég notaði orðið óþjóðalýður til að sýna í setningu orðið lýður með Y.

Að líða vel er með einföldu i.  Það var allt og sumt

Ísdrottningin, 7.2.2008 kl. 17:02

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk fyrir að leiðrétta mig Ísdrottning.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 7.2.2008 kl. 18:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.