Fyrir svefninn.

Halldór á Skriðuklaustri var manna meinyrtastur.
Einu sinni kom til hans maður, sem Páll hét,
og var hjá honum nætursakir.
Halldór hafði litlar mætur á Páli,
en tók honum þó með venjulegri gestrisni.
Þegar Páll fer að búast til brottferðar daginn eftir,
lætur Halldór líka söðla hest sinn.
,, Hvert ætlar þú?" spyr Páll. Halldór segir honum það.
,, Ég ætla sömu leið", segir Páll.
Væri ekki skemmtilegra fyrir okkur að verða samferða?"
,, Ojú", segir þá Halldór. ,, Það væri kannski
skemmtilegra fyrir hestana".

 Ritstjóra-syndir.

               Kölski lá og las í skrá
               lygasyndir manna.
               Sagt er frá, hann fyndi þá
               flesta  ritstjóranna.

Breytt vísa.

 

              Lífið kemur langt og mjótt,
              logar á veiku skari.
              Ég hef verið í alla nótt
              úti á kvennafari.

Staka.

             Lausavísur liðugar,
             léttar, nettar, sniðugar,
             auka gleði alls staðar
             -- eins og heimasæturnar.
                                                           

                            SleepingGóða nótt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góða nótt 

Ásdís Sigurðardóttir, 8.2.2008 kl. 22:38

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Góð setning: ,, Það væri kannski
skemmtilegra fyrir hestana".

Góða nótt

Huld S. Ringsted, 8.2.2008 kl. 22:55

3 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Takk fyrir þetta Milla frænka mín, þú ert dugleg að skrifa.

Ég get bara  sagt þér að ég er dauðuppgefin eftir vikuna, er í miklum æfingum, vel mett, sæl með alla sem hvetja mig áfram í vonda veðrinu og vil helst sofa af mér alla löngun í sígarettur. Helgin ætti að verða skemmtileg því ég er fullbókuð til vina og ættingja, óvenjulegt það.

Hafðu það yndislegt Milla mín og nú er best að fara að halla sér, aftur. Góða nótt og góða helgi. kveðja eva

Eva Benjamínsdóttir, 8.2.2008 kl. 23:27

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk fyrir innlitin mín kæru, þær eru skondnar þessar sögur og vísur,
enda margir sérkennilegir karakterar til á árum áður.

Eva mín það er gott að vera þreyttur og svo hvílir maður sig um helgar,
Hugsa þú bara stíft  mig langar ekki í sígarettur þær eru ógeð.
Hafðu það skemmtilegt með vinum þínum um helgina.
                      Góða helgi og kveðjur
                         Milla frænka.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.2.2008 kl. 09:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.