Fyrir svefninn.

Jóna húsfreyja var skorin upp á sjúkrahúsi
hjer í bænum og var svæfð.
Það ber oft við að sjúklingur tala um áhugamál
sín upp úr svefninum.
Svo var um Jónu húsfreyju, hún kallaði oft:
>>Lárus, Lárus, kystu mig.<<
þegar Jóna var orðin albata, kveður læknir hana
og segist byðja að heilsa Lárusi.
>>Lárusi þekkið þjer hann?<< spurði Jóna.
>>Já ég veit það muni vera maðurinn yðar,<<
svaraði læknirinn.
>>Nei það er vinnumaðurinn okkar.<<


Stúlka ein var að tala við pilta, og af einhverju,
sem bar á góma í samtalinu, kallaði hún þá svín.
Einn af piltunum svaraði þá með þessari vísu:
           

            Ástum tryllta auðarlín,
            orðin stilltu betur þín.
            Ef við piltar erum svín,
            ertu gylta veiga mín!

Ýmsu leynt.

           Þjóðin öll í orðum fám
           yfir sannleik breiðir.
           Ekki sjást í ættarskrám
           allar krókaleiðir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Æ, þú ert yndisleg að vanda GN

Ásdís Sigurðardóttir, 23.2.2008 kl. 20:49

2 identicon

Hæ var að skella myndum inn á síðuna hjá strákunum síðan í maí og júní þar sem það var fótboltamót á skaganum þar sem sonur þinn og sonarsonur voru líka. Ég sá að það var ein mynd af syni þínum svo ég ákvað að kíkja hingað og skella inn link á albúmið frá mótinu  ef þig langar að sjá http://barnaland.is/barn/52110/album/618276

 Bestu kveðjur til ykkar Gísla

Gulla

Gulla (IP-tala skráð) 23.2.2008 kl. 23:07

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Góða nótt Milla mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 23.2.2008 kl. 23:42

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Smellur inn í nóttina eins og alltaf.

Ía Jóhannsdóttir, 24.2.2008 kl. 00:15

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk fyrir innlitin flottustu stelpur í heiminum. Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.2.2008 kl. 09:17

6 Smámynd: Solla Guðjóns

Frábært.

Góða nótt vina

Solla Guðjóns, 24.2.2008 kl. 22:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.