Fyrir svefninn.

Hjörleifur á Gilsbakka var á skemmtisamkomu.
Maður frá Keldulandi bauð heimasætu einni upp
og dansaði við hana.
Þá kvað Hjörleifur:

                      Gleði veldur, lund fær létt,
                      lifnar heldur grínið;
                      Hryssu geldri á harðasprett
                      hleypir keldusvínið.

Fyrirheit.

                     Þó að núna þér sé kalt,
                     þú skalt engu kvíða.
                     Þér mun hitna þúsundfalt,
                     þegar tímar líða.

Graðfolinn og Presturinn.

                     Brúnn af flestum fákum ber,
                     fýsinn sezt til mera.
                     En stóðmesta hestinn hér
                     hygg ég prestinn vera.

                                               Góða nótt.Sleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Góða nótt elsku Milla mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 6.3.2008 kl. 21:09

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góða nótt mín kæra og takk fyrir þessar flottu vísur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.3.2008 kl. 21:14

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Takk fyrir yndislega vísu elsku Milla mín

Kristín Katla Árnadóttir, 6.3.2008 kl. 21:35

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Góða nótt Milla mín

Huld S. Ringsted, 6.3.2008 kl. 21:36

5 Smámynd: Erna

Góða nótt og takk fyrir kvöldskamtinn.

Erna, 6.3.2008 kl. 22:17

6 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Frábært. Kveðja.

Þorkell Sigurjónsson, 6.3.2008 kl. 23:23

7 Smámynd: Tiger

  Hahaha... frábært. Það er þokkalegt þegar prestastéttin er farin að skáka bændastéttinni í reiðmennsku. Presturinn hefur sannarlega ekki verið við eina fjölina felldur, ekkert frekar en Graðhesturinn sá að tarna.

*knús á þig Milla og takk fyrir góðar kvöldvísur*!

Tiger, 7.3.2008 kl. 02:50

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk öll mín kæru fyrir innlitin, og gott að þið hafið gaman að þessu.
Ég elska þessar gömlu sögur og vísur.
Knús á ykkur öll inn í góðan dag.
               Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 7.3.2008 kl. 06:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband