Afmælisdagar. Gaman, gaman!!!

Það er nú svo yndislegt að ljósálfurinn minn hún
Viktoría Ósk varð 9 ára í gær, en það á ekki að
halda upp á það fyrr en um næstu helgi, þá verður
hinn Ljósálfurinn minn fluttur hingað og hún heitir
Bára Dís þær eru miklar vinkonur.
Þær mæðgur Íris mín og Bára Dís eru að koma alkomnar
hingað á föstudaginn kemur, og ég hlakka afar mikið til.
En í dag á litla ljósið hún Aþena Marey mín afmæli,
hún er 4 ára í dag og eru leikskólabörnin í afmæli hjá henni núna.
síðan um helgina verður svona ömmur og afar og svoleiðis öldungar.
En þessu litla ljósi mínu finnst amma ekki gömul þegar hún á að dansa
með henni eftir Latabæjar myndböndunum, ó Guð það getur tekið á,
því ég verð að gera allt, nema slepp við spíkat, eins gott
en ekki sé ég eftir því að hafa flutt hingað,
þær eru búnar að gefa mér ómælda gleði þessir englar
ásamt elsku tvíburunum mínum, og svo kemur Íris með Báru Dís.
Ég er afar lánsöm kona, þakka ég Guði fyrir að gefa mér þann
þroska að kunna að njóta fjölskyldu minnar.InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk móðir mín góð, þú ert það líka.
koma tímar koma ráð.
             Knús Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.3.2008 kl. 17:36

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til hamingju með ljósálfana Milla mín þú er yndisleg

Kristín Katla Árnadóttir, 11.3.2008 kl. 18:24

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk Sigríður og Katla, já það er ljúft að vera amma.
þessar dömur mínar eru báðar fæddar á Akureyri
henni gekk seint með þær báðar, sú eldri fæddist um 12.30 og vorum við þá orðin afar þreytt ég og pabbinn, tölum ekkert um mömmuna, en ég amman var búin þann áttunda að fljúga frá Ísafirði
til Akureyrar síðan í bíl til Húsavíkur, til þess eins að fara með sjúkrabílnum inn á Akureyri aftur, ég var orðin nokkuð þreytt um kvöldið daginn eftir þegar við Ingimar fórum heim.
sæll og glaður sofnaði maður og svaf eins og steinn alla nótina.

Þegar sú yngri fæddist ókum við gamli frá Ísafirði kl. 5 um morguninn
10-03 fór morguninn eftir með henni í sjúkrabílnum á Akureyri
og ljósið fæddist 18.30 þ. 11-03. svona á þetta að vera,

Ég var líka viðstödd þegar tvíburarnir mínir fæddust í Keflavík
það var nú meiri himnasælan að fá þær fyrstu barnabörnin og heilbyggðar, það er ekki sjálfgefið.

Tveimur árum seinna var ég viðstödd þegar Hróbjartur
hennar Írisar minnar fæddist, fyrsti prinsinn kom í heiminn.
Enn þá einu sinni er ég komin með ritgerð,
                    kveðja og knús Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.3.2008 kl. 18:58

4 Smámynd: Brynja skordal

Til hamingju með ljósálfana ykkar ömmuhlutverkið er yndislegt var líka svo lánsöm að vera viðstödd hjá dóttir minni þegar ömmuprinsinn fæddist mikil gleði og tár yndislegast í heimi

Brynja skordal, 11.3.2008 kl. 20:19

5 Smámynd: Erna

Til hamingju Milla mín með ljósálfinn þinn og bara allann  fallega hópinn þinn.Þú ert svo sannarlega rík.Greinilega yndislegir dagar frammundan hjá ykkur góða skemmtun og knús.

Erna, 11.3.2008 kl. 21:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.