Fyrir svefninn.

Helga Brynjólfsdóttir frá Selalæk, elsta kona landsins,
er hagmælt. Í æsku hennar var maddama Sigríður Guðmundsdóttir,
móðir sr.Ísleifs í Arnarbæli, húskona á Selalæk.
Hún bauð helgu einu sinni í graut, en sagði,
að hann væri víst bæði sangur og hrár.
Þá kvað helga:

                       Sangur, hrár, með sótbragði,
                       saltlaus, grár af vatnsburði,
                       þunnur, árans óhræsi,
                       eykur sára vindstrengi.

Heimilisbragur.

                      Héðan burt ég held á rás,
                      hér er margur fauti.
                      Konan líkust belju á bás,
                      bóndinn mýldu nauti.

Fyrirbæn.


                     Blessaður, vertu vinur minn,
                     verði þér flest til ráða.
                     Guð og enda andskotinn
                     okkur styrkir báða.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

góð vísa þú ert eins og Pabbi minn alltaf með vísur. Guð gefi þér góða nótt elsku Milla mín Og mér þykir væntum svona vísur þær eru mjög góðar.Knús inn í nóttina

Kristín Katla Árnadóttir, 18.3.2008 kl. 22:02

2 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Góða nótt Milla mín, gaman að lesa vísurnar þínar á kvöldin

Guðborg Eyjólfsdóttir, 18.3.2008 kl. 22:03

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Var farin að sakna kvöldheimsókna minna til þín knús

Ásdís Sigurðardóttir, 18.3.2008 kl. 22:04

4 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Góða nótt Milla mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 19.3.2008 kl. 00:49

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk fyrir innlitin snúllur mínar.
 Hallgerður er gott veður hjá ykkur? hann er nú aðeins farin að hvessa hér og á að enda í leiðindaskít á morgun.
                       Knús kveðjur Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.3.2008 kl. 09:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband