Snyrtimenska.

Það er til fólk sem lýður afskaplega illa,
ef það er ekki hreint og vel til fara.
Svo eru aðrir menn sem hafa ,,vatnsskrekk" og
finna ekki til neinnar ánægju við að þvo sér og verða hreinir.
. . . og enn aðrir kunna best við sig, þegar þeir eru verulega
subbulegir --- það eru þeir sem eru fæddir sóðar. . . þeim
stendur á sama, hvort neglurnar eru svartar að óhreinindum,
tennur óburstaðar eða klæðnaður þeirra með blettum.

Ég er ekki að tala um menn sem eru að vinnu, sem óhreinkar þá:
Þeir geta svo sannarlega ekki að því gert, að þeir eru óhreinir á meðan
á vinnunni stendur: og ég þekki marga menn, sem vinna erfiðisvinnu,
en þeirra fyrsta verk, þegar heim kemur,
er að snyrta sig sem best þeir geta.

Bandaríkin eiga sér málshátt, sem hljómar þannig:
,, hreinlæti gengur næst guðdóminum" . . . þeir meina,
ef maður er hreinn á líkamanum, þá er maður hreinn
á sálinni . . .
það geta verið skiptar skoðanir á þessum málshætti,
hvort hann er einhvers verður, en ansi er ég hrædd um,
að honum sé stundum ekki mikill gaumur gefinn,
hér á Íslandi, þótt mikil framför hafi orðið í þessum á
síðustu árin, og er é alls ekki að halda því fram,
að hér séu ekki margir, sem eru ekki prýðilega
snyrtilegir á allan hátt, en margt fólk er bókstaflega
óþrifið að útliti til.

Þessu fólki langar mig til að gefa eitt ráð, eða öllu heldur
" sá" einni hugmynd í huga þess, hvað ef þið munduð lenda í slysi?
Læknar og hjúkrunar-fólk mundi þurfa að sinna ykkur,
það væri ekki gott til afspurnar fyrir þá sem eiga í hlut.
Smá hugleiðing inn í daginn.
þeir taka það til sín sem eiga það.
                                                       
Ritað upp úr bókinni  Kurteisi, tekin saman af Rannveigu Schmidt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Takk Milla mín aldrei er góð vísa of oft kveðin. Góð ábending inn í daginn, snyrtilegt úti og inni í sálinni. OMG, verð að taka til í dag

Mamma mín hefur örugglega notað ráðleggingar Rannveigu Schmidt og mikið var ég henni mömmu þakklát fyrir lexíuna, þegar ég lenti í bílslysunum í gamla daga. Það er nú lágmark siðgæðis að þvo sér að neðan og fara í hrein nærföt daglega.

Eva Benjamínsdóttir, 11.4.2008 kl. 12:49

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Eva hún er alveg frábær þessi gamla bók eftir hana Rannveigu,
Það sem er hægt að tiltaka, sem manni finnst nú bara sjálfsagt í dag.
                         Kveðjur Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.4.2008 kl. 13:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband