Fyrir svefninn.

Í húsinu hverfisgötu 80 kom upp eldur í sumar.--
Magnús Magnússon ritstjóri leigir þar á 1. hæð.
Fjörgömul kona, sem býr í kjallara húsins varð
eldsins vör. Hún gat af tilviljun náð í lögregluþjóna,
sem voru fyrir utan húsið.
Þeir fóru strax á glugga magnúsar og börðu á gluggann.
Magnús hélt þetta vera drukna menn, bað þá fara og
hvaðst ekki opna fyrir þeim, en lögreglumennirnir börðu
því ákafar.
þá kallaði Magnús aftur út um gluggann:
,, Ef þið farið ekki undir eins,
þá hringji ég á lögregluna".

Vísur eftir Sæmund Björnsson í Strandasýslu um
Gvend lontu, er eina nótt ætlaði til stúlku í baðstofu,
en rak sig á kopp, er stóð á loftinu, svo fólkið vaknaði
við og Sæmundur líka.

                  Svefnsins firrtur var ég værð,
                  vert er slíkt að muna,
                  er bölvuð lontan ólm og ærð
                  anaði í hlandkolluna.

                  Þú hefur vaðið ramman reyk,
                  rétt er slíkt að muna,
                  er fjandann með þér fékkst í leik
                  að fala hlandkolluna.

                                     Góða nótt.Sleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Góða nótt Milla mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 2.5.2008 kl. 21:07

2 Smámynd: Erna

Góða nótt Milla mín.

Erna, 2.5.2008 kl. 22:33

3 Smámynd: Solla Guðjóns

Góða nótt ástin alltaf gott að kíkja hér inn á kvöldin

Solla Guðjóns, 2.5.2008 kl. 22:33

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Góða nótt Milla mín mér finnst svo gott að koma til þín fyrir svefninn

Kristín Katla Árnadóttir, 2.5.2008 kl. 23:09

5 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Góða nótt Milla elsku frænka mín

Eva Benjamínsdóttir, 3.5.2008 kl. 00:55

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góðan daginn kæru,
vonandi eigið þið góðan dag.
Knúsí knús kveðjur
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 3.5.2008 kl. 06:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.