Förum af bæ í dag.

Það er alveg stórkostlegt hvað það er mikið að gera
hjá öllum, við borðuðum saman í gærkveldi, borðuðum 
steiktan fisk, kartöflur og ferskt salat.
Þær systur ætluðu kvennaferð til Akureyrar í dag,
En þá kom upp úr dúrnum að íþróttasýningin væri í dag
og þar sem Viktoría Milludóttir er í fimleikum þá var hætt við þá ferð.
En Dóra mín á erindi til Akureyrar, svo það kemur í hlut þeirra
sem ætíð er hægt að treysta á Tounge  sem sagt ömmu og afa,
að fara með elsku snúllurnar okkar í Akureyrarferð.
Svo núna erum við að hafa okkur til í þá ferð, nema ég varð,
auðvitað aðeins að líta í tölvuna.
Ætlum að vera komin í Bónus kl 10 og eiga svo daginn í eitthvað annað,
manni þarf aldrei að leiðast á Akureyri.
                  Kæru bloggvinir og þeir sem kíkja inn
                  megi þið eiga góðan dag í dag.
                  Kveðja Milla.Heart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk fyrir kveðjuna Einar minn og hafðu það gott sömuleiðis
á skaganum þínum.
                                  Kærar kveðjur.
                                    Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 3.5.2008 kl. 08:11

2 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Góða skemmtun á Akureyri með manni og dúllunum þínum

Knus

Kristín Gunnarsdóttir, 3.5.2008 kl. 09:16

3 Smámynd: Rannveig Þorvaldsdóttir

...já brjálað að gera hjá öllum alltaf  Hafið það huggó

Rannveig Þorvaldsdóttir, 3.5.2008 kl. 09:48

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Góða skemmtun á Akureyri, aldrei að vita nema ég rekist á þig Milla (þú ert nú örugglega núna á fullu í Bónus)

Huld S. Ringsted, 3.5.2008 kl. 10:36

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Eigðu góða helgi elsku Milla.

Kristín Katla Árnadóttir, 3.5.2008 kl. 14:39

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skemmtu þér vel á eyrinni elsku Milla, vona að vorið sé nú að koma fyrir alvöru til ykkar.  Knús á þig og takk fyrir fallegar kveðjur til mín og minna. 

Ásdís Sigurðardóttir, 3.5.2008 kl. 16:14

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Blogga um ferðina, þið eruð bara flottar.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 3.5.2008 kl. 17:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband